bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=1414
Page 5 of 6

Author:  jonthor [ Fri 13. Mar 2009 10:58 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

arnibjorn wrote:
Mjög smekklegt.

Vantar meira S&S.


hehe, hvað er S&S?

Author:  arnibjorn [ Fri 13. Mar 2009 11:03 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

jonthor wrote:
arnibjorn wrote:
Mjög smekklegt.

Vantar meira S&S.


hehe, hvað er S&S?


Stretch og slamm :D

En það eru ekkert allir sem að fíla það :wink:

Author:  Aron Andrew [ Fri 13. Mar 2009 11:04 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Af því þetta er Árni á grunar mig Stretch og slam :lol:

En flottar breytingar hjá þér! Góðir hlutir gerast hægt :)

Author:  birkire [ Fri 13. Mar 2009 11:05 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Hrikalega er hann sætur, Væri löngu búinn að missa mig í M-tech og lækkun ef ég væri þú :santa:

Author:  DABBI SIG [ Fri 13. Mar 2009 11:12 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

virkilega snyrtilegur vagn og gaman að sjá svona bíla sem er vel við haldið og hafðir snyrtilegir. Klárlega magnað að eiga hann í 6 ár og hafa hann í 100% viðhaldi. Respect.

Annars væri ekki vitlaus hugmynd að setja svolítið snyrtilegri púststút á bílinn 8)

Author:  Daníel [ Fri 13. Mar 2009 13:25 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Tekur sig vel út á felgunum hjá þér. Og virkilega heill og fínn bíll. Um að gera að halda honum áfram í toppstandi!

Author:  Angelic0- [ Sun 15. Mar 2009 20:42 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Fíla ekki þessi ljós.... en M-Contour gerir bílinn "hefí mega" :)

Author:  jonthor [ Wed 18. Mar 2009 11:03 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Ég var einmitt lengi að velta þessu fyrir mér með ljósin, en ég er bæði hrifnastur af þessum ljósum og svo auk þess þá virðast þetta vera einu ljósin sem enginn lendir í vandræðum með, enda rándýr fjandi.

Eitt sem ég gleymdi að minnast á, ég er líka búinn að láta setja nýja kúplingu í gripinn frá síðustu uppfærslu :wink:

Author:  GunniClaessen [ Wed 18. Mar 2009 21:07 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Klárlega Fallegasti E36-inn á Íslandi! :shock:

Author:  Angelic0- [ Wed 18. Mar 2009 22:00 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

jonthor wrote:
Ég var einmitt lengi að velta þessu fyrir mér með ljósin, en ég er bæði hrifnastur af þessum ljósum og svo auk þess þá virðast þetta vera einu ljósin sem enginn lendir í vandræðum með, enda rándýr fjandi.

Eitt sem ég gleymdi að minnast á, ég er líka búinn að láta setja nýja kúplingu í gripinn frá síðustu uppfærslu :wink:


Ég og Aron Friðrik vorum hvorugur í vandræðum með okkar ljós...

kom reyndar smá móða í annað ljósið hjá mér, en ég komst svo að því að það var vegna þess að lokið á ljósinu var ekkert lokað...

en þau eru meira OEM looking...

Author:  Emil Örn [ Sun 17. Oct 2010 12:51 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Mjög flottur þessi, stráheill!

Gamall þráður, ég veit.. Sá hann í undirskriftinni þinni í einhverjum öðrum þræði.

Author:  jonthor [ Mon 18. Oct 2010 09:26 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Takk fyrir það. Er búinn að eiga gripinn núna í 7,5 ár :)

Author:  Alpina [ Mon 18. Oct 2010 17:58 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

jonthor wrote:
Takk fyrir það. Er búinn að eiga gripinn núna í 7,5 ár :)


IMPRESSIVE,,,,,,,,,

er búinn að eiga blæjuna í rúm 6 ár ...

tíminn líður :shock:

Author:  tolliii [ Fri 31. Dec 2010 07:34 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Mega Clean bíll :wink:

Author:  jonthor [ Wed 28. Sep 2011 11:31 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Jæja, það er kannski rétt að taka smá update á gamla. Ég er ekki með nýjar myndir en er búinn að vera að lagfæra nokkra hluti.

Fyrsta ryð byrjaði að kræla á sér fyrir svona tæplega tveimur árum, ég er núna búinn að láta laga það allt saman og sprauta ásamt því að komin er ný glæra á ríflega helminginn af bílnum.

Núna í sumar brotnaði svo annar gormurinn að framan svo ég skellti nýjum gormum í að framan og aftan, ég var búinn að skipta um dempara fyrir nokkrum árum svo bíllinn er allur stífur og fínn núna. Einhverjir myndu segja að þetta hefði verið gott tækifæri til þess að lækka bílinn, en eins og fram hefur komið þá hef ég lítinn áhuga á slíku og ætla að halda þessum alveg orginal svo slíkir gormar fóru í hann.

Einnig er áfram haldið með 100% viðhald, ef eitthvað klikkar er gert við það um leið. Bíllinn er í ótrúlega góðu ástandi og stendur núna í um 210k km, er ekinn svona 3-4k á ári. Sér ekki á honum.

Ég hendi nú kannski inn myndum við tækifæri, hér fyrir neðan er ein gömul, en útlitslega hefur lítið breyst og mun ekki breytast. Í mars á næsta ári er ég búinn að eiga bílinn í 9 ár! :shock:

Image

Page 5 of 6 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/