bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Ný mynd á bls. 6
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=1414
Page 4 of 6

Author:  Djofullinn [ Thu 02. Mar 2006 16:05 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
jonthor wrote:
Já, tíminn er bara svona ótrúlega fljótur að líða. Ég fór út til Frakklands í ágúst 2003, eða fyrir 2,5 árum síðan :shock:


loool, mér finnst þú vera nýfarinn :lol: :lol: :lol:
Sama hér :lol: :? :oops:

Author:  jonthor [ Thu 02. Mar 2006 16:10 ]
Post subject: 

Já, alveg magnað hvað tíminn líður hratt, núna er mars sem þýðir að ég er búinn að eiga bílinn í 3 ár, það er nú bara nokkuð gott :) Geri ráð fyrir að næstu 3 ár verði jafn ánægjuleg :)

Author:  jonthor [ Thu 17. Aug 2006 19:53 ]
Post subject: 

Jæja, hér kemur smá update. Ég er búinn að skipta um útvarpstækið, setja leður utan um stýrið, skipta um stýrishnúð, skipta um framrúðuna, kaupa nýjar taumottur og setja armpúða í bílinn.

Ég er núna búinn að eiga bílinn í 3,5 ár og búinn að keyra hann um 60.000km síðan ég keypti hann (þar af 50.000km í Frakklandi). Á þessum tíma hefur bíllinn fengið vel rúmlega 100% viðhald.

As beautyful as ever:

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Author:  JOGA [ Thu 17. Aug 2006 20:01 ]
Post subject: 

Flottur bíll og virðist líta svakalega vel út. Til hamingju með útskriftina í vor.

En mætti ég spyrja hvað þú varst að læra úti?

Author:  jonthor [ Thu 17. Aug 2006 20:57 ]
Post subject: 

Markmiðið með vistinni í Frakklandi var þríþætt:

1. Klára mastersgráðu í verkfræði
2. Læra Frönsku
3. Læra meira um frönsk vín

... ekki endilega í þessarri röð 8)

Author:  Logi [ Thu 17. Aug 2006 22:27 ]
Post subject: 

Þetta er alltaf jafn stórglæsilegur bíll. Ótrúlega clean og fallegur alltaf!

Author:  Giz [ Thu 17. Aug 2006 22:39 ]
Post subject: 

jonthor wrote:
Markmiðið með vistinni í Frakklandi var þríþætt:

1. Klára mastersgráðu í verkfræði
2. Læra Frönsku
3. Læra meira um frönsk vín

... ekki endilega í þessarri röð 8)


Ég hefði nú getað kennt þér þetta, utan verkfræðina reyndar! En það er aukaatriði hvort sem er vænti ég.....

G

Author:  98.OKT [ Thu 17. Aug 2006 23:03 ]
Post subject: 

Virkilega snyrtilegur bíll :wink:
en mér fynnst allveg magnað að bíllinn skuli vera dældar og rispulaus og enn með speglana á sér eftir Frakklandsdvölina :shock: , þegar ég var þarna í sumar þá sá ég varla bíl sem ekki var dældaður eða rispaður, enda með ólíkindum hvernig frakkar leggja í stæði eða hvernig mótorhjólafólkið kemst upp með að skrapa hliðarnar á bílunum án þess að nokkuð sé gert :shock:

Author:  Jss [ Thu 17. Aug 2006 23:09 ]
Post subject: 

Bíllinn er alltaf jafn smekklegur, eigulegur vagn. ;)

Author:  jonthor [ Fri 18. Aug 2006 07:47 ]
Post subject: 

Giz wrote:
jonthor wrote:
Markmiðið með vistinni í Frakklandi var þríþætt:

1. Klára mastersgráðu í verkfræði
2. Læra Frönsku
3. Læra meira um frönsk vín

... ekki endilega í þessarri röð 8)


Ég hefði nú getað kennt þér þetta, utan verkfræðina reyndar! En það er aukaatriði hvort sem er vænti ég.....

G


Algjört aukaatriði :D


98.OKT wrote:
Virkilega snyrtilegur bíll :wink:
en mér fynnst allveg magnað að bíllinn skuli vera dældar og rispulaus og enn með speglana á sér eftir Frakklandsdvölina :shock: , þegar ég var þarna í sumar þá sá ég varla bíl sem ekki var dældaður eða rispaður, enda með ólíkindum hvernig frakkar leggja í stæði eða hvernig mótorhjólafólkið kemst upp með að skrapa hliðarnar á bílunum án þess að nokkuð sé gert :shock:


já, rétt. Svarið felst líklega í því að ég notaði bílinn ekki mikið til þess að keyra innan downtown París (enda pointless) og ég átti bílskúr. Ég nældi mér nú samt í tvær smá rispur, aðra einmitt á spegilinn þegar trukkur tróð sér á milli mín og annars bíls á tveggja akreina veg.

Maður á nú ansi mikið af skrautlegum umferðasögum eftir þessa dvöl :)

Author:  Stanky [ Fri 18. Aug 2006 08:53 ]
Post subject: 

Sniðugur að fara í verkfræði í Frakklandi, hef lesið að þeir eru langt langt langt á undan flestum þjóðum í vekfræði! :D

En þetta er smekklegur bíll.... skipta um felgur!!!!:D:D

kv,
haukur

Author:  jonthor [ Mon 21. Aug 2006 16:40 ]
Post subject: 

Stanky wrote:
Sniðugur að fara í verkfræði í Frakklandi, hef lesið að þeir eru langt langt langt á undan flestum þjóðum í vekfræði! :D

En þetta er smekklegur bíll.... skipta um felgur!!!!:D:D

kv,
haukur


Já 17" M-Contour er á döfunni. Ætli ég bíði ekki með það fram á næsta sumar samt.

Author:  jonthor [ Fri 13. Mar 2009 10:43 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Jæja menn geta séð í fyrsta post hér að þegar ég keypti bílinn í mars 2003 þá ætlaði ég mér alltaf að kaupa M-Contour felgur á bílinn. Ég gerði það loksins um daginn, 6 árum seinna. Hér eru nokkrar myndir sem ég tók í morgun á símann minn fyrir utan TB, ég var að láta smella nýjum vatnskassa í bílinn. Hann stendur nú í 199k og gerir ekkert nema verða betri með árunum. Ég tek nú kannski betri myndir þegar ég gef mér tíma.

Útlitsleg uppfærsla frá síðustu myndum eru ný Hella Angel Eyes, dekkri hliðarstefnuljós, dekkri framstefnuljós og M-Contour:

Image
Image
Image
Image

Author:  Jón Ragnar [ Fri 13. Mar 2009 10:53 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Til hamingju loksins!!!

Einn heillegasti Coupe á landinu.
Núna vantar bara lækkun og þá er þetta perfect 8)

Author:  arnibjorn [ Fri 13. Mar 2009 10:56 ]
Post subject:  Re: Bíllinn minn E36 323i coupe '96 - Nýjar myndir á bls. 4

Mjög smekklegt.

Vantar meira S&S.

Page 4 of 6 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/