Jæja, það er kannski rétt að taka smá update á gamla. Ég er ekki með nýjar myndir en er búinn að vera að lagfæra nokkra hluti.
Fyrsta ryð byrjaði að kræla á sér fyrir svona tæplega tveimur árum, ég er núna búinn að láta laga það allt saman og sprauta ásamt því að komin er ný glæra á ríflega helminginn af bílnum.
Núna í sumar brotnaði svo annar gormurinn að framan svo ég skellti nýjum gormum í að framan og aftan, ég var búinn að skipta um dempara fyrir nokkrum árum svo bíllinn er allur stífur og fínn núna. Einhverjir myndu segja að þetta hefði verið gott tækifæri til þess að lækka bílinn, en eins og fram hefur komið þá hef ég lítinn áhuga á slíku og ætla að halda þessum alveg orginal svo slíkir gormar fóru í hann.
Einnig er áfram haldið með 100% viðhald, ef eitthvað klikkar er gert við það um leið. Bíllinn er í ótrúlega góðu ástandi og stendur núna í um 210k km, er ekinn svona 3-4k á ári. Sér ekki á honum.
Ég hendi nú kannski inn myndum við tækifæri, hér fyrir neðan er ein gömul, en útlitslega hefur lítið breyst og mun ekki breytast. Í mars á næsta ári er ég búinn að eiga bílinn í 9 ár!