Page 1 of 1

730IA

PostPosted: Mon 11. Jul 2005 15:44
by Prawler
Image
Image
Image
Image
Image

Þetta er 730IA árg "92 innfluttur "99
Litur Brokatrot-Metallic
minnir að hann sé 187 hö. Lítið af aukabúnaði í honum. Rafmagn í rúðum, tvívirk topplúga með rafmagni, litla OBC tölvan, læst drif(LSD).
Búinn að eiga hann í rétt rúmt ár núna og er án efa skemmtilegast bíll sem ég hef átt.
Búið að þurfa að gera eftirfarandi fyrir hann en samt hverrar krónu virði.
Skipta um Check Control tölvu, perur í OBC,allar fóðringar í hjólabúnaði að framan, skipta um bremsudiska og klossa að framan,skipt um miðjukút í pústi,taka upp hedd (kistufell), hvít stefnuljós að framan,nýir demparar og gormar að aftan.
skipta um felgur (er ekki ánægður með þessar sem eru undir honum á myndunum vantar 17-18") Lýsi hér með eftir þeim ef einhver á svoleiðis

PostPosted: Mon 11. Jul 2005 16:01
by íbbi_
gullfallegur, gaman að sjá menn sem eru að halda þessum skriðdrekum í standi, mínir uppáhalds bimmar

PostPosted: Mon 11. Jul 2005 22:19
by Helgi M
Jebb mjög flottur hjá þér bíllin og vel útlítandi :wink:

PostPosted: Mon 11. Jul 2005 22:31
by Prawler
Takk fyrir það. það virðist vera endalaust sem hægt er að gera til að betrumbæta samt sem áður. Central læsingin er eitthvað að stríða mér þessa dagana, held að það sé eitthvað brotið í hurðinni bílstjóramegin.
Það er bara svona að eiga svona bíl að hann heldur manni við efnið :P

PostPosted: Tue 12. Jul 2005 10:21
by íbbi_
andfélagssinnaður cylinder í bílstjórahurðini er bara e32 syndrome :wink:

PostPosted: Tue 12. Jul 2005 12:27
by grettir
Prawler wrote:Takk fyrir það. það virðist vera endalaust sem hægt er að gera til að betrumbæta samt sem áður. Central læsingin er eitthvað að stríða mér þessa dagana, held að það sé eitthvað brotið í hurðinni bílstjóramegin.
Það er bara svona að eiga svona bíl að hann heldur manni við efnið :P

Fjárfesta bara í fjarstýringum:
http://www.aukaraf.is/product_info.php?cPath=32_60&products_id=297

Ég var með svona græju áður en ég setti þjófavarnakerfið í minn, því cylinderinn var eitthvað slappur á bílstjórahurðinni.

En til lukku með vagninn, hann er glæsilegur :)

PostPosted: Tue 12. Jul 2005 12:31
by Prawler
Þetta er ekki cylinderinn sjálfur, heldur er eitthvað sem tengist við hann sem er brotið, rúðan festist stundum niðri vegna þess að það er eitthvað sem spennir hana. Get ekki læst þó ég geti snúið lyklinum.