bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW E30 318iSNOS. Auto X
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=10995
Page 1 of 37

Author:  jens [ Mon 04. Jul 2005 23:58 ]
Post subject:  BMW E30 318iSNOS. Auto X

Bíllinn minn er E30 318is us árgerð 02/91 ekinn 100 þúsund mílur eða ca. 160 þúsund km sem er ekki mikið af svo gömlum bíl. Ég er áttundi eigandi þessa bíls frá upphafi.
Ég er búinn að vera með bílinn inn í skúr hjá mér síðan í byrjun júní að skoða ástand og plana framhaldið. Þegar bíllinn var keyptur var hann ekki á númerum og ekki í ökufæru ástandi þó ég hafi keyrt hann heim, planið að setja hann á númer í lok ágúst.

Bíllinn er vel búinn aukahlutum enda hefur 318is oft verið kallaður " litli M3 " .

Í bílnum er t.d :

Svört leðursport sæti.
Shadow line.
M-Tech sport fjöðrun.
Air cond.
Rafmagn í rúðum.
Central læsingar.
OBC, Litlatölvan.
Leður stýri með loftpúða.
Leðurgírhnúfi.
Samlitur spoiler á skotti.
Álfelgur 14 X 6 1/2" BMW felgur.

Það sem búið er að gera:

KN sía í orginal boxi.
2.5" open flow púst með 3.5" ANZA sport stút.
15 X 7" álfelgur og pirelli P6000 195 X 55
Drif í dag er 3:64 non LSD / gamla brotnaði.

Það er samt margt sem á eftir að gera og er langt í land þessa dagana að bíllinn fari á götunna og það er alltaf eitthvað nýtt sem kemur upp þegar byrjað er að rífa. Það vantar líka ýmislegt á bobby eins og t.d. orginal framsvuntu og is lip.

Planið er að koma honum á götuna sæmilega útlítandi en framtíðar plön eru að setja hann á 15" Alpina felgur sem ég á en til þess þarf ég að kaupa mér ný dekk en það er margt sem er ofar á listanum eins og heilmálun. Ég er að skoða að setja í hann annan tölvukubb sem gæfi mér nokkur aukahestöfl.

Heimasíða um uppgerð á bílnum.



Smá info um 318is.

Vél:
M42 1.8 DOHC 16V.
1,796cc 81.0 x 84.0mm.

Afl.
136 hp 0-60mil/h 9.1 sek.

Fjöðrun:
M-technic sport fjöðrun.

Bremsur:
Diskar allan hringinn.
Framan – 260mm loftkældir diskar.
Aftan – 258mm heilir diskar og aðskilinn skál fyrir handbremsu.

Drif:
4:10 LSD.

fæðingarvottorð bílsins:

Vehicle information

VIN long: WBAAF9310MEE72879
Type code: AF93
Type: 318IS (USA)
Dev. Series: E30 ()
Line: 3
Body type: LIM
Steering: LL
Door count : 2
Engine: M42
Cubical capacity: 1.80
Power: 103
Transmision: HECK
Gearbox: MECK
Colour: STERLINGSILBER METALIC (224)
Upholstery : SCHWARZ KUNSTLEDER (0166)
Prod. Date : 1991-01-12

Order options

No. Description
209 LIMITED SLIP DIFFERENTAIL (25%)
242 DRIVER AIR BAG+SERIES STRG WHL RIM (PUR)
281 LM-RAD 6 ½ X 14
300 ZENTRALVERRIEGLUNG ELEKTRISCH
410 WINDOW LIFTS, ELECTRIC AF FRONT
428 WARNING TRIANGLE
481 SPORT SEATS F DRIVER/FRONT PASSENGER
520 FOGLIGHTS
530 AIR CONDITIONING
556 EXTERIOR TEMPERATURE DISPLAY




Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru þegar ég kom með hann heim.

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Author:  Knud [ Tue 05. Jul 2005 00:07 ]
Post subject: 

Flottur bíll

Væri gaman að sjá þennan bíl uppgerðan!

Bara um að gera að vera duglegur :)

Author:  Djofullinn [ Tue 05. Jul 2005 00:09 ]
Post subject: 

Til hamingju ;) Hlakka til að sjá hvernig gengur með hann

Author:  jens [ Tue 05. Jul 2005 00:09 ]
Post subject: 

THX ég skal lofa því.

Author:  arnib [ Tue 05. Jul 2005 00:12 ]
Post subject: 

Fékk tækifæri til að sjá þennan bíl um daginn í stuttri heimsókn
hjá honum Jens, og verð að segja að mér líst vel á!
Auðvitað á ýmislegt eftir að gera, en liturinn er flottur, innréttingin
mjög góð og 15" Alpina á eftir að lúkka vel :D

En þetta með bremsurnar og fjöðrunina úr M3 held ég að sé ekki rétt,
Til að byrja með eru M3 bremsudiskar með 5 göt :)

Author:  oskard [ Tue 05. Jul 2005 00:14 ]
Post subject: 

318is er ekki með neitt m3 dót sorry

Author:  oskard [ Tue 05. Jul 2005 00:16 ]
Post subject: 

318is er samt sem áður MJÖG kúl bílar, væri vel til í að eiga slíkann sjálfur :D

Author:  Ravis [ Tue 05. Jul 2005 02:02 ]
Post subject: 

flottur bíll hjá þér Jens eheh :P gangi þér sem allra best með hann og hlakka til að sjá hann on the road again :P

Author:  Ravis [ Tue 05. Jul 2005 02:04 ]
Post subject: 

úbs .. jæja undirskriftin er farinn núna :twisted:

Author:  gstuning [ Tue 05. Jul 2005 09:36 ]
Post subject: 

Ef þú gefst ekki upp þá á þessi eftir að gefa þér "good times"

Author:  jens [ Tue 05. Jul 2005 13:11 ]
Post subject: 

Takk fyrir og þetta með M3 stuffið sel ég ekki dýrara en ég keypti það, var á einhverri 318is síðu og þar var þessu haldið fram mjög stíft en ef það reynist rangt þá er það bara rangt.

Var svo heppinn að fá þrjá reynslu bolta úr E30 CREW liðinu heim um daginn og skoða bílinn með mér, það var mjög gaman.

Það gleymdist að bíllinn var í eigu kraftsmeðlimsins Ravis áður en ég keypti hann og á hann inni vígslurúnt þegar bíllinn fer út 8) :burnout:

Author:  GK [ Fri 08. Jul 2005 15:27 ]
Post subject: 

Til hamingju með bílinn átti svona vagn frábærlega skemmtilegir bílar, don´t give up :D 8)

Author:  jens [ Sat 09. Jul 2005 11:03 ]
Post subject: 

Takk og ég skal reyna að gefast ekki upp 8) . Ég sé það í undirskriftinni að þú átt svona bíl, hver er staðan á honum er hann í uppgerð eða niðurrifi.

Author:  GK [ Sat 09. Jul 2005 17:16 ]
Post subject: 

olíudælan fór í honum og hann bræddi úr sér þannig ég seldi félaga mínum hann og við settum M20B25 í húddið á honum :D 8)

Author:  jens [ Sat 09. Jul 2005 19:49 ]
Post subject: 

Gott að vita af vél í parta 8) .

Page 1 of 37 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/