bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E21 323i 1981 & PORSCHE 911S 1977 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=1046 |
Page 1 of 8 |
Author: | bebecar [ Tue 18. Mar 2003 13:12 ] |
Post subject: | BMW E21 323i 1981 & PORSCHE 911S 1977 |
![]() Jæja... M5 seldur og ég komin á "nýjan" grip. Bíllinn er komin með aldur til að fara í ríkið en sá "gamli" var átti að fermast í vor ![]() BMW 323i fyrst skráður 11.11.1981. Í bílnum er ekki vökvastýri, 5 gíra. Standard búnaður: Öryggisbelti fyrir 4 og álfelgur! Það eru 10 eigendur að bílnum með mér en bíllinn hefur ýmist verið í eigu Dalvíkinga eða Akureyringa alla tíð. 1998 var byrjað á yfirhalningunni (Logi á heiðurinn af þessu öllu)höfuðlegur og allar pakningar náttúrulega, það var skipt um ventlasæti, þéttingar og tilheyrandi. Bíllinn er með original hlutföllum 3,45:1 Hafþór í TB skipti um spíssa 2001. Sama ár var skipt um allar vacum-slöngurnar í innspítingunni ásamt auxilary air valve, sem stjórnar loftflæði inn á vélina eftir hita hennar. Innspítingin í þessum bílum er Bosch K-jetronic, mekanísk, ekki tölvustírð. Þessar innspítingar voru mjög dýrar á sínum tíma og aðeins notaðar í BMW, Benz, Porsche, Ferrari, Volvo, Saab og Ford. Hafþór skipti einnig um allar fóðringar og stýrisenda í framfjöðruninni 2001 og einnig var skipt um kertaþræði. 2002 voru settir í hann H&R gormar sem lækkuðu hann um ca 3 cm. Að aftan eru stillanlegir Koni-Sport demparar, sem eru stífir jafnvel í mýkstu stillingunni. Einnig var skipt um alla bremsudiskana og klossana og dælurnar gerðar upp. Persónulega hef ég áform um þennan bíl ef að peningar leyfa (og ef frúin ræður við vöðvastýrið). Ég ætla nú samt að halda því fyrir mig í bili í díteilum. En við erum hugsanlega að tala um smávægilegar endurbætur en auðvitað verður haldið í original lúkkið. Hér eru nýjar myndir af A-4664 og MJ-877 líka. Síðan að þetta var tekið er sá hvíti búin að fara athugasemdalaust í gegnum skoðun og komin með 04 miða, ég er líka búin að kaupa auka felgur 13" sem ég ætla að byrja að taka í gegn í þessari viku og svo voru handbremsubarkarnir og teknir úr og smurðir voða fínt þannig að nú virkar allt fullkomlega nema gúmmíið á bremsufetilnum dettur alltaf af. |
Author: | flamatron [ Tue 18. Mar 2003 13:18 ] |
Post subject: | |
Áttu fleiri myndir af honum.? að innan, vél?? eithvar solleiðis ![]() |
Author: | bebecar [ Tue 18. Mar 2003 13:33 ] |
Post subject: | |
Er að vinna í því... myndi væntanlega koma um helgina. |
Author: | flamatron [ Tue 18. Mar 2003 13:38 ] |
Post subject: | |
cool, alltaf fundist e21 sudda flottir bílar. ![]() |
Author: | bebecar [ Tue 18. Mar 2003 13:39 ] |
Post subject: | |
Maður hugsa eiginlega frekar um þá bíla sem manni finnst ekki flottir frá BMW því þeir eru svo fáir! ![]() |
Author: | hlynurst [ Tue 18. Mar 2003 13:39 ] |
Post subject: | |
Gaman að sjá að menn eru að halda svona bílum við... gaman að sjá að þú ert enganveginn hættur að betrumbæta þennan bíl. Ég kaus nú að láta þig tjúnna hann með túrbínu af því að mér finnst krafturinn í bílnum skipta öllu máli. Auk þess akstureiginleika... ![]() |
Author: | flamatron [ Tue 18. Mar 2003 13:51 ] |
Post subject: | |
Er ekki túrbínu tjúning á svona gamlan bíl bara draumórar??, Allt undir húddinu orðið of gamalt,! og þarf að skipta um bremsur? myndi örruglega ekki virka vel..? frekar setja nýrri vél ofaní... e30 325i m20 vél? ![]() |
Author: | bebecar [ Tue 18. Mar 2003 13:55 ] |
Post subject: | |
Ég var nú aðallega bara að sjá hvað pælingar aðrir hafa. Mig langar ekki hið minnsta að skella túrbínu í hann! Og ég vil fyrir alla muni halda í þessa vél. Spurning um að setja kannski heitari ás eða eitthvað slíkt - það væri allavega það mesta sem ég myndi gera (ef peningar leyfa). Mig langar bara að sjá hvað öðrum finnst sniðugast. |
Author: | GHR [ Tue 18. Mar 2003 14:36 ] |
Post subject: | |
hlynurst wrote: Gaman að sjá að menn eru að halda svona bílum við... gaman að sjá að þú ert enganveginn hættur að betrumbæta þennan bíl.
Já, alltaf gaman þegar fólk er að hugsa um að betrumbæta. Ég persónulega kaus tjúna N/A og þá héld ég að það væri sniðugast að fá heitari ás. En bebecar : af hverju færðu þér ekki stærri en 15" felgur á gripinn? Væri flottur á 17" og breiðum dekkjum ![]() Ef ég ætti hins vegar svona gamlan bíl og með svona mikið upptekna vél þá myndi ég hiklaust setja bínu í hann. Það væri geðveikt |
Author: | bebecar [ Tue 18. Mar 2003 14:48 ] |
Post subject: | |
Stærra en 15" myndi án efa koma niður á aksturseiginleikum og svo er það ekki í stíl við stock police hugsunarháttinn hjá mér ![]() |
Author: | Logi [ Tue 18. Mar 2003 14:54 ] |
Post subject: | |
Quote: Stærra en 15" myndi án efa koma niður á aksturseiginleikum og svo er það ekki í stíl við stock police hugsunarháttinn hjá mér Þeir fengust nefnilega með stærst 15" felgur en komu original á 13"
Var að fara að skrifa þetta, bebecar var á undan. BMW afgreiddi þá aldrei á öðru en 13". Það voru síðan Alpina, Hartge og kannski einhverjir fleiri sem létu framleiða 15" fyrir E21. |
Author: | flamatron [ Tue 18. Mar 2003 14:56 ] |
Post subject: | |
Fáðu þér þessar, koma vel út!!http://www.bmwkraftur.com/spjall/viewtopic.php?t=742 |
Author: | hlynurst [ Tue 18. Mar 2003 14:58 ] |
Post subject: | |
Ég þá bara ekki að fá sér 13"? Nei annars finnst mér það alls ekki flott... 15" eða 16" er flott á þessum. ![]() |
Author: | bebecar [ Tue 18. Mar 2003 15:05 ] |
Post subject: | |
Hann er á 13" núna og lúkkar bara ansi vel á þeim. 15" Alpina felgur eru nú samt örugglega málið. Hver veit nema að ég geti nálgast þær notaðar í þýskalandi.... |
Author: | bjahja [ Tue 18. Mar 2003 16:03 ] |
Post subject: | |
Ég merkti einmitt við 15" felgurnar. ![]() En hvernig er bílinn á sig kominn, lakk vél og svoleiðis. Han er mjög töff. |
Page 1 of 8 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |