by fart » Sun 24. Apr 2005 19:17
Þetta var algjör snilld.
Smá Comment um Alpina B10 V8.
Það er soldið skrítið að setjast upp í þennan bíl því maður finnur engan mun frá M5, nema stýrið er örðuvísi og svo litirnir í mælaborðinu. En þegar maður tekur af stað þá fattar maður hvað þessir bílar eiga í raun lítið sameiginlegt. Power delivery í Alpina er smooth as silk en samt alveg plenty. Það kemur bara í endalausum straumi af hraðaaukningu.
Fjöðrunin er ALLT ÖÐRUVÍSI en í M5. Manni líður eins og á limmo, samt þannig að svörunin úr stýrinu er mjög góð og hann er mjög fótviss.
Í heildina er þetta æðislegur bíll, frábær innanbæjar sem og utanbæjar græja. Krúser dauðans og algjör sleeper. Með því að standa gjöfina í botni er auðvelt að missa afturdekkin í spól. Krafturinn er meira en nægur og ofboðslega aðgengilegur. Gjöfin er smooth, ekki eins næm og M5 með Sport ON, meira lík því þegar Sport er OFF.
Ég er að klippa niður videoin, set þau inn á eftir.
Auðvitað var tekin spyddddnah!
Last edited by
fart on Sun 24. Apr 2005 19:21, edited 1 time in total.
E36 M3GTtt