Breytt plan þýðir að þessi elska verður brúkuð í vetur og er alls ekkert að því, en sjöan er nú komin í 277.2xxkm. sem þýðir að ég keyrði tvö þúsund kílómetra í októbermánuði
Ég og Danni tókum stefnuljósin að framan í gegn fyrir þónokkru síðan en svarta lakkið var farið að flagna af þeim.
Búið að pússa niður gamla lakkið:

Ein af vinstra ljósinu áður en það var tekið af fyrir sprautun:

Hægra ljósið horfið:

Og hér er búið að sprauta ljósin með um 5-6 umferðum af svörtu lakki:

Í síðustu viku ventlastillti ég svo loksins vélina og fór þá helvítis ventlatikkið:

Og svo ein í lokin af henni nýbónaðri:

Ég lenti í því óskemmtilega tilviki að það var bakkað framan á sjöuna í síðustu viku en sem betur fer skemmdist bara númeraplatan
