Jæja er ekki kominn tími á smá update.
Projectið gengur ágætlega. Stefni að því að vera búinn með boddívinnu eftir næstu helgi. Og þá fer bara að gera klárt fyrir sprautun. Ekki að það taki stuttann tíma en maður fer þá alla vega að sjá fyrir endann á þessu.
Bíllinn er hér farinn að standa í allar fjórar lappirnar aftur. Ég þurfti að setja struttinn í gormaskálina strax útaf ég þurfti að færa bílinn aðeins. Ss á milli plássa.
Hérna er mynd af meistaraverkinu, hehe...
Smá highview shot. Tekið ofan af steypudælu , stóð ofan á tunnunni í svona 4 metra hæð. Hefði verið gaman ef maður hefði haft almennilega myndavél.
Á maður bara ekki að hafa þetta svona? Misslitt og flott
Ég held að hjólabúnaðurinn hafi sloppið heill frá tjóninu. Kemur betur í ljós.
Afturbrettið orðið svolítið mattað af sprauturyki
Allt voða snyrtilegt.
Þegar ég fékk bílinn var hann á 3 bbs basketweaves felgum. Framfelgurnar voru ógeðslegar af bremsuryki og höfðu greinilega ekki verið þrifnar lengi. Þannig ég tók mig til og fór með eina þeirra sem lenti í tjóni og lét gera við hana og þreif svo allar með felgusýru... það virkaði ekki sem skyldi..
Þannig ég tók álmassa sonax, notaði hann til að fægja kastara á jeppanum. Það var eiginlega það eina sem virkaði. En maður mátti ekki nudda of fast þá fór húðunin af.. Þannig það voru bara tuskur og eyrnapinnar heilt kvöld og slatti af öli
Svo keypti ég nýjar miðjur upp í BogL og þær voru ekki aaaaalveg í sama lit og felgurnar.. Þannig ég keypti miðjur af honum Húna og hugsa að ég noti þær og skili hinum.
Smá lita dæmi.
Nýja miðjan ásamt einni felgunni.Þetta sést kannski ekki alveg á svona litlum myndum.
Svo miðja frá honum Húna.
Jæja nóg blaður. Orðinn stjarfur af öllu þessu pikki.