Virðist vera sem að það er að leka með pakkningunni þannig að undir boosti þá er að þrýstast loft inná kælikerfið sem veldur yfirþrýstingi og hitar bílinn, einnig þegar þetta skeður þá þrýstist út kælivökvi meðfram neðri hosunni á forðabúrinu og útum drain slönguna.
Þannig að bíllinn fer aftur inní skúr fljótlega og mun ég þá taka heddið af og skipta um pakkningu ef það er hún sem hefur gefið sig og er að leka lofti í vatnið. Er að hugsa um að setja venjulega pakkningu í staðinn fyrir MLS og gá hvort hún virki betur.
Annars er smá updeit á bílnum, keypti gömlu ASA AR1 felgurnar mínar aftur og þær eru 8x17" og 9x17" ... er að rönna 8mm H&R spacera með þeim þannig að offsetið er 27 núna... gæti verið að ég sleppi spacerum að aftan þegar ég kaupi breiðari afturdekk. Núna er ég með 215/40/17 og er að spá í að fara í 235/35 eða 245/35 ... gæti trúað að þetta fari að röbba þá með spacerunum. Svo er ég líka búinn að skipta út hitaelementinu, miðstöðvarmótornum, mótstöðunni fyrir mótorinn og stillitakanum á miðstöðinni, Nýr tappi fyrir kælivökva forðabúrið, nýr vatnslás.
Hérna eru myndir sem ég tók af svölunum (er veikur og kemst ekki að taka almennilegar myndir núna)
Svo á ég eftir að skipta út hurðunum og henda betur förnum hurðum í staðinn.
Það sem ég ætla mér að gera í skúrnum er að taka heddið af og vonandi komast í veg fyrir hitamálið, setja stærri IC, laga olíulekann að framan.
Þetta tekur vonandi stuttan tíma og þá get ég farið að taka aftur á bílnum af alvöru
p.s Hvar finn ég pústpakkningarefni í túbu?