Ég vildi byrja á því að þakka hrósin um bílinn, líka frá þeim sem fíla ekki litinn.. ég er sjálfur ekki hrifin af honum persónulega, en það er ekkert um annað að velja en þennan lit á þessum bíl, nema ég vilji keyra öfugu megin.
Hver veit nema liturinn breytist tímabundið. Annars er hann að vinna á hjá mér liturinn.
Varðandi felgur þá hef ég lengi verið og er enn mikill BBS CH maður, eða almennt BBS maður. Ætli peningunum verði ekki kastað í þá átt þegar stærðin er komin á hreint.






