Jæja, þá er ég loksins búinn að kaupa þessar felgur

Þarf bara að henda hinum 2 í viðgerð og finna dekk á þær...

Svo skellti ég mér upp á braut um daginn, þrælgaman þrátt fyrir veikleika bílsins
Ýmislegt sem þarf að ditta að bílnum áður en það verður hægt að taka svona á honum aftur.
Þarf helst að gera það í þessum mánuði og fara svo í skoðun, fresturinn er alveg að renna út...
Núverandi plan er s.s. að klára bílinn, gera hann góðann og gott betur en það, var búinn að týna saman ca 1500$ pöntun sem verður keypt í vetur...
Er svo að fá smá kit á hann fljótlega, sem verður sprautað ásamt húddi og skotti
Læt svo eina mynd fylgja með, sem Sindri Skarp tók...
