Góða kvöldið, loksins eitthvað byrjað að gerast í 525i málum, ég reif heddið af vélinni sem var í honum, keyrð 230.000KM og sást þá greinilega að allar legur niðrí sveifarás voru HANDÓNÝTAR.
Stimplarnir gengu smávegis uppfyrir blokkina, ætla vona að ventlarnir í nýupptekna heddinu mínu hafi sloppið, læt KISTUFELL yfirfara það, þrýstiprófa og svo plana ef það er ekki sprungið.
Einnig sést hvað stimplarnir hafa skekkst í strokkunum, var svona á öllum strokkum, en mest á 2 í miðjunni.
En sú gamla var þó með mjög fullkominn bruna. Ekki til sót.
Svo ákvað ég að rífa frammendann af svo ég þyrfti ekki að taka //NÝJU// vélina uppúr aftur, MJÖG SVO aðgengilegt allt svona.
Soggrein laus frá heddinu, ásamt tímareim(kemur splúnkuný reim, nýtt strekkjarahjól og ný vatnsdæla í stað þess gamla.)
Meira af því sama.
Svo blasti þetta við þegar ég tók heddið af "NÝJU" vélinni, vel sótuð, kannski skiljanlegt, ekki búin að ganga í þónokkur ár, þó var cylenderhúðin góð, ((((( MÁ ÞRÍFA SÓTIÐ AF MEÐ EINHVERJU EFNI?)))))
Meira seinna.
Kv. Axel Jóhann
