einarsss wrote:ömmudriver wrote::D
ertu að bömpa þráðinn án update?

Haha jebb enda var þetta bara smá tease
Ég læt myndirnar tala sínu máli:
Strax eftir að þessar myndir voru teknar þreif ég bílinn og bónaði hann í ræmur
Ég fór með bílinn til hans Auðunns bólstrara á miðvikudags morguninn og náði svo í hann eftir vinnu eða klukkan níu um kvöldið og var hann þá að klára. Mesti tíminn fór í það að ná fremsta hluta gamla toppsins af en hann var kíttaður í rusl og skrúfaður í drasl
Svo skal ég reyna að muna eftir því að taka myndir af gamla toppnum á morgun en ég var búinn að lofa sjálfum mér því að brenna gamla toppinn vegna þess hvað hann er búinn að valda mér miklum ama
Heildarkostnaðurinn er nú kominn í rétt tæpar 150.000kr.ísl. en við skulum ekkert vera að ræða neitt um tíman sem að þetta ævintýri er búið að taka
Over and out...............