Bíllinn er orðinn glæsilegur hjá þér, til hamingju með það. Ég er nýbúinn að taka minn úr geymslu og er að byrja að sjæna hann til. Ég keypti í hann hvít stefnuljós og er að taka gula ljósið úr aðalljósunum ásamt því að slípa þau og gera eins og ný. Ég keypti líka í hann nýja afturrúðu en hún var orðin mjög ljót. Bremsudiskarnir eru orðnir ljótir hjá mér, hvar er besta verðið á nýjum diskum?
Svona var bílinn á felgunum þínum

Ég valdi að færa hann meira í orginal útlit og hafði þennan til fyrirmyndar.

Hér er hann kominn á felgurnar.

BMW Z3 árg. ´00 2,5