by Schulii » Mon 08. Aug 2005 18:30
Ég þakka hamingjuóskirnar frá Bjarka og jú ég er alveg sammála því sem hann segir. Þessi bíll er alveg geðveikur!!!!!!
Ég ætla að quota í Bjarka þegar hann skrifaði mér e-mail frá þýskalandi og nota hans lýsingu: "Að keyra þennan bíl er klikkun!"
Ég átti von á miklu afli en samt kemur það mér á óvart hversu öflugur hann er, innréttingin er frábær, fínn spilari sem Bjarki setti í fyrir mig úti, útlitið meiriháttar og akstursánægjan endalaus!!
Tollgaurarnir á Seyðisfirði voru mjög almennilegir og starfsmenn Norrænu líka. Fluginu seinkaði þannig að ég var orðinn of seinn þegar ég loksins lenti en þeir biðu 15-20 mínútur eftir mér framyfir venjulegan opnunartíma og voru bara mjög kammó með það meira að segja. Þeir fá þakkir fyrir!
Eyðslan var 10.6l. á 100km á leið í bæinn sem mér finnst mjög gott. Var að cruisa á svona 105-125km/klst ca. Átti smá spretti inná milli en ekkert alvarlegt. Langaði bara að njóta ferðarinnar.
Bjarki á hrós skilið fyrir frábæra þjónustu. Mæli 100% með honum ef menn eru í hugleiðingum. Frábær þjónusta alla leið!
Er að fara núna í frí með konunni norður í afslöppun. Tek myndir og svona seinna.
Krafts kveðja,
Skúli
BMW 520d E61