Felgurnar komnar undir, reyndar ekki felgurnar sem ég var búinn að skoða á síðunni. Felgurnar eru mjög líkar en vantar þetta stóra og fallega lipp sem mig langaði svo að hafa á felgunum. Búið að vera tómt vesen með þessar felgur, enginn þarna úti talar ensku og ég tala afskaplega litla þýsku. Fékk felgurnar seinnipartinn í dag sem er aðeins rúmlega 2 vikum seinna en lofað, þess vegna enginn tími til að þrasa meira í fólki sem skilur ekki prump í ensku. Mjög svekkjandi en alltof seint að fara að verða brjálaður yfir þessu, sel þetta síðar í sumar og versla mér eitthvað annað. Fékk þetta á góða verðinu og sel þetta auðveldlega fyrir kostnaði og sennilega aðeins rúmlega það. Engar myndir að svo stöddu þar sem þetta fór undir fyrir utan húsið í myrkrinu og svo þurfti ég að svappa fram- og afturfelgum vegna þess að ET25 komst ekki undir að framan vegna demparanudds. Er með ET15 að framan og ET25 að aftan sem kallar klárlega á spacera að aftan, fer þá líklega í 15mm spacera og eingöngu að aftan því að framdekkin standa nógu andskoti mikið út
Nýr kveikjuhamar og hús, nýjir þræðir og ný kerti. Samt vill bíllinn ekki ganga almennilega hægaganginn, næst á dagskrá er hægagangsventill og athuga hvort greyjið sé að fá falskt loft inn á sig. Finn þetta á endanum, þetta er nú einu sinni bara gamall bíll sem þarf að klappa annað slagið....hef allavega aldrei lesið um E30 sem hefur haft ofnæmi fyrir verkstæðistíma og brasi. Mun taka myndir af bílnum þegar ég er búinn að þrífa hann og sjæna aðeins til. Snemma í fyrramálið verður skipt um olíu og fjarlægja ískur í afturbremsum, ætla líka að stilla swaybar að framan.