JÆJA!!! þá er þessi djöfull kominn með fulla skoðun athugasemdalaust.
Ég hef aldrei haft jafn miklar áhyggjur af engu. Þeir spuðru aðeins um Coilovers, en ég er með orginal TUV skírteini á það. Annars rann hann bara í gegn. Mjög fyndið þegar skoðunarmaðurinn reyndi að keyra bílinn inn í bremsutékkið, hann drap allataf á bílnum, kunni ekkert á keppniskúplinguna
Þetta kom reyndar ekkert á óvart þar sem ég renndi yfir bílinn overall, þreif botninn og mótorinn með olíuhreinsi til að taka allt kám, ljósastillti, málaði camber plöturnar matt svartar (eru ólöglegar) og bónaði bílinn með Canuba, blingið alltaf gott til að draga athyglina frá öðru.
Orginal aftasti kúturinn fór undir í gær útaf skoðuninni og þá er alveg full OEM púst frá Downpipes með CAT's og allem. Þvílíkur munur á öllu, AFR gildin fóru í fokk og bíllinn fór að ganga mjög ríkur líklega útaf auknum bakþrýstingi, það fór að koma blár reykur úr pústinu ef ég keyrði inn í búst líklega útaf auknum bakþrýstingi. Aflið alveg hvarf, sérstaklega low-end, en mikið svakalega er bíllinn hljóðlátur svona. Algjör unun að krúsa umm

án þess að hafa drunurnar.
Núna er bara að setja opna pústið undir aftur, taka brettalænerana úr að framan og skrúfa semislikkana undir.
