Nú er komið að því að huga að hvað er næst á dagskrá varðandi bílinn. Ég er sáttur við nokkuð marga hluti.
1. Aflið er nægilegt, stórefast um að ég fari í stærri bínur, nenni hreinlega ekki þessu rugli meir. Keyri frekar á 12psi daglega, 20-24psi spari og kanski í kringum 16 á braut. Það ætti að þýða range upp á 470-600+
2. Bíllinn var vigtaður um daginn og mér sýnist hann vera 1305kg, finnst það samt frekar lítið. Gæti verið dry weight..?? Annars stendur ekki til að létta hann mikið þar sem að það gefur marginal effect úr því sem komið er. Sérstaklega þar sem aflið er til staðar og bremsur. Mig grunar að þyngdin sé tæplega 1400kg, allavega skv mínum útreikningum á því sem hefur farið úr og í bílinn.
3. Bremsur eru ok
4. Öryggi er ok, spurning um að framlengja veltibúrið fram í mælaborð, en það er mega ópraktíst fyrir daily.
5. Fjöðrunin er ok, en mætti vera með stífari gorma fyrir serious brautarakstur. Vandamálið við það er að ég er með stífustu gormana sem eru street legal. Ég gæti farið í dýrara coilover kerfi með stillingum og það verður gert næst þegar þetta kerfi er búið að skila sínu.
6. Drif/gírkassi/kúplling. Gírkassinn er fínn, ég veit ekki hvort að 6speed myndi gera mikið, en hugsanlega fer ég í aðeins hærra drif. 2.65 er snilld í löngum ferðalögum, en samt væri top speed 280-290 meira en nóg þar sem að bílinn höndlar illa svona háan hraða. Kúplingin er sterk og þarf ekki neina uppfærslu þrátt fyrir hærri blástur.
Þá er það eina sem er eftir.. loftflæðið...
Ég hef verið að skoða hvort að það sé til einhver rear-defuser þarna úti sem bæði lookar ágætlega og gerir eitthvað gagn. Fann þennan hérna..

Spurning er svo hvort þetta gerir eitthvað gagn og hversu auðvelt er að koma honum fyrir án þess að skera varadekkshursluna í burtu.
Annar splitter sem ég sá er þessi hér, en hann er mun dýrari.



Svo er spurning hvort maður færi í það að ná sér í auka framstuðara fyrir brautarhasarinn og setja á hann svona Carnards sem beina loftinu frá hjólaskálunum. Þetta lookar ekkert sérstaklega smekklega fyrir daglegan akstur
Eitthvað svona:




Svo er náttúrulega spurning um stærri framsplitter..


Ananrs er það nýjasta að ég skipti út Momo07 alcantara stýrinu fyrir Momo Competiton 35cm svart með stungnu leðri, dálítið þykkra en hitt. Aðallega gert til að komast í gengum skoðun, en auk þess er ég bara að skemma alcantara stýrið á því að keyra án haska. Því verður því væntanlega smellt á fyrir track daga.