Smá update.
Er kominn með annað hedd og núna var það rétt.
Fékk Jónka í heimsókn og við skelltum niður heddinu á mettíma, enda orðnir vanir
eftir allt þetta vesen. Núna er bara að klára að raða saman og setja í gang.
Síðan málaði ég nýju(gömlu) ströttana svarta og er að klára að mála bremsudælurnar rauðar.
Nýjir (e36)stýrisendar komnir í hús.
Það sem er á dagskrá:
Fara með í skoðun
Láta Badda félaga minn sprauta bílinn og fara síðan að púsla bílnum saman
IE sway bar set
Láta smíða strut bar(aftan og framan)
Nýtt pústkerfi
Wilwood bremsur að framan
Og ef peningar leyfa þá verður keypt alvöru coilovers fjöðrunarkerfi, með hverju mælið þið með?