bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=20272
Page 151 of 423

Author:  fart [ Sun 03. May 2009 17:24 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

Hann vinnur öðruvísi, ekki eins mikill hasar

Author:  fart [ Mon 11. May 2009 07:41 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

Smá update á þennan.

2.65 drifið gerbreytir bílnum. Núna get ég krúsað um á mun lægri snúning á hraðbrautinni sem er mikill munur þar sem að bíllinn er minn daily driver. Hann "pullar" vel í öllum gírum, það verður gaman að taka 100-200 rönn í 4. gír, reyni það fljótlega.

Recaro Pole Position sætin eru líka miklu þægilegri en þau sem ég var með. Líklega er betri svampur í þeim auk þess sem að þau eru 2cm víðari yfir mjaðmirnar en það er mikill kostur þegar maður er að keyra í jakkafötunum.

Um helgina reif ég OEM BMW airboxið aftur af og grunur minn var á rökum reistur. Það vantaði O-hringina á milli throttle bodys og intakslúðrana. Ég setti ívið þykkari O-hringi en BMW mælir með útaf boostinu. Annað mál var að ég áttaði mig ekki á því að trompetin eru mismunandi. Það er eitt partanúmer fyrir Cyl 1 og 3, annað fyrir 2-4-6 og svo þriðja fyrir cyl 5. Cyl 5 er sá sem hýsir bracketið fyrir bensíngjöfina en í grunninn er það eins og það sem er fyrir 1 og 3. Þegar ég bar þetta saman sá ég að þau eru dálítið öðruvísi í laginu. Fyrir þetta gekk bíllinn frekar "lean" eða í Lambda 1.1 til 1.16 í lausagangi og var líka yfir 1.0 í rólegum akstri. Núna mallar hann ljúft í 700rpm Lambda 1.0 í lausagangi og er í fullkomnu 1.0 í velnjulegum akstri. Low-endið virðist hafa lagast, en það gæti líka verið nett placibo effect. Í raun veit maður ekkert hvort þetta gerir eitthvað, ætli næsta uppsveifla verði ekki notuð í að kaupa lyftu og Dyno í skúrinn :lol:

Bíllinn virðist ekkert hafa laskast við útafaksturinn á SPA enda s.s. bara möl. Eina sem sér á eru hvítu felgurnar, en ætli þær verði ekki polyhúðaðar fljótlega. Hvít málning er ekki alveg nógu sterkt fyrirbæri fyrir brautarakstur. En á heildina er ekki hóst né stuna fyrir utan smá olíuleka sem ég þarf að athuga hvaðan kemur, en hann virðist koma á inntakshliðinni auk þess sem að það var smávægilegur leki á ventlalokspakningu en ég held að það hafi lagast við að herða á lokinu.

Þegar við Sveinbjörn vorum að taka eitt rönnið á SpA skaust tappi úr pústinu (þar sem súrefnisskynjari er venjulega) og ég blockaði það bara með tímabundið með bolta og hosuklemmu yfir. Það verður græjað næst þegar ég nenni í bílinn.

Nú er bara að reyna að fá skoðun.. s.s. back to the old problem.

Author:  gstuning [ Mon 11. May 2009 08:35 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

lambda 1.1-1.16 er borderline missfire svæði þannig að það er ekkert placebo effect að hann gangi betur
við 1.0

Author:  fart [ Mon 11. May 2009 09:51 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

gstuning wrote:
lambda 1.1-1.16 er borderline missfire svæði þannig að það er ekkert placebo effect að hann gangi betur
við 1.0


Nei ég var að vísa í DA boxið vs BMW boxið, þ.e. hvort það er í raun marktækur munur þar, en þar sem ég gerði ekki Dyno test fyrir og eftir verð ég bara að taka rasshestaflamælinn.

Author:  IvanAnders [ Mon 11. May 2009 10:19 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

Líður þér ekkert kjánalega í jakkafötum, í körfustólum, og með veltibúr? :lol:

Author:  arnibjorn [ Mon 11. May 2009 10:20 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

IvanAnders wrote:
Líður þér ekkert kjánalega í jakkafötum, í körfustólum, og með veltibúr? :lol:

Kjánalega?

Það er AWESOME 8) 8)

Author:  fart [ Mon 11. May 2009 10:37 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

IvanAnders wrote:
Líður þér ekkert kjánalega í jakkafötum, í körfustólum, og með veltibúr? :lol:


Nei alls ekki, mér finnst það illa svalt! 8) Mér líður samt stundum smá kjánalega þegar ég er að troðast inn í bílinn í þröngum bílastæðum, en nýju stólarnir eru samt aðeins betri hvað það varðar.

Author:  Pétur Sig [ Mon 11. May 2009 11:16 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

ertu einhverstaðar með myndir af nýju sætunum ? :D

Author:  fart [ Mon 11. May 2009 11:21 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

Nei, ég þarf að taka myndir af sætunum og inntaksmixinu.

Author:  Indjaninn [ Tue 12. May 2009 15:14 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

fart wrote:
gstuning wrote:
input flangsinn þarf að herða akkúrat rétt uppá.

þ.e það þarf að vera ákveðið mikil tregða í honum, það mun standa í
Technical Information System frá BMW um hversu mikil tregða það er.
líklega 4-8nm áður enn hann hreyfist. Ekki bara hert uppá því það er hægt að herða
svo mikið að flangsinn festist fastur, eða það er gífurleg tregða.
of laust og draslið "skröltir" bara


Þetta hlýtur að standa í Bentley manualnum.

Djöfull vantar mig nokkra grease-monkeys með mér í skúrinn. Glatað að standa í þessu einn, já og lyftu líka .. mig vantar lyftu í skúrinn 8)


ég kann alveg á skrall og skiptilykla :lol: eina sem ég vill í staðin er sæti í GT og rúm til að sofa í... get alveg sofið til fóta, er ekki nema 193 :roll:

Author:  fart [ Mon 08. Jun 2009 08:22 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

Smá Update:

Ég er svo endalaus snillingur að það hálfa væri nóg. Tók mig til og hreinsaði MAFinn.. með svo miklum ágætum að ég braut skynjarann :x og svona MAF kostar €1000 kall í Porsche umboði (allt dýrt hjá Porsche). Ég fór því á Ebay og pantaði MAF og fann einn "nýjan" fyrir 100Pund. Hann beið svo eftir mér þegar ég kom til baka frá Íslandi. Ég sá strax að þetta var ekki Orginal BOSCH og virkaði allur frekar groddaralegur. Það kom svo í ljós þegar ég setti hann í og í gang að hann var alveg úti á túni. Bíllinn gengur á Lambda 0.70 í hægagang og er svipað ríkur eða "floddaður" í rólegum akstri. hann virðist hinsvegar vera skárri í blastinu. Þetta kemur sér einkar illa þar sem ég á pantað Dynotest í dag, jæja ég hef á ágætis afsökun ef þetta mælist eitthvað kraftlaust :lol:

Hann er svo ríkur að í gær fór hann ekki í gang og kertin voru alveg rennandi blaut. Ég henti því BOSCH kertunum í (kaldari en regular um 2 stig) og þá fór bíllinn í gang.

Annað... þessar UBER flottu hosuklemmur sem ég hafði sett í bílinn eru mega drasl. Svo virðist sem að þær leki alltaf boosti þrátt fyrir að vera massa hertar. Það er líklega skýringin af hverju ég hætti að sjá 16psi og fór alveg niður í 12psi á tímabili. Í gær tók ég mig til og skipti út öllum klemmunum (út með 2cm breiðar og í með 1cm breiðar). Áðan sá ég aftur 16psi.

Update á morgun... hvað hann er margir hestar og tog.

Það væri gaman ef menn kæmu með guess á

HP
NM

Author:  bimmer [ Mon 08. Jun 2009 10:18 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

Er eitthvað vit í að fara með hann í dyno í þessu ástandi?

Author:  gstuning [ Mon 08. Jun 2009 10:58 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

Mér skildist á honum að mixtúran væri fín þegar bílinn væri undir loadi,

Enn ég giska á 540hö og 640nm tog, flywheel

Author:  fart [ Mon 08. Jun 2009 11:07 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

Mixtúran er ágæt undir fullum hægripetala, en ég efast um að hann sé í ultimate ástandi. Það er möguleiki að þeir eigi MAF þarna uppfrá sem ég get notað.

Author:  bimmer [ Mon 08. Jun 2009 11:30 ]
Post subject:  Re: M3 GTtt 111/350 (356)

Ok.

Annars segi ég 600hp flywheel og 650Nm tog.

Page 151 of 423 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/