Þegar við lögðum af stað, E32, E34 og Nissan service bíllinn Í Nissaninum var 17" M Contour gangurinn minn ásamt hjólatjakki.
Sjöan hans Arnars. Er ekki ennþá alveg að átta mig á því að hún er komin í lag.
Síðan tók ég nokkrar myndir fá þessari risa samkomu BMW Krafts á föstudeginum. Mætti að vísu seint sjálfur þar sem ég var að skipta um felgur á bílnum mínum. Vill nota tækifærið og þakka Apollo kærlega fyrir að hleypa mér inn í aðstöðuna hans og á lyftuna! Flýtti mikið fyrir
Tók líka myndir fyrir utan íbúðina sem við leigðum um helgina.
Ferðin gekk mjög vel. Viftukúplingin í bílnum mínum er orðin slöpp og ég lenti því tvisvar sinnum í því að bíllinn byrjaði að ofhitna í mjög hægri umferð. Fyrra skiptið í biðröðinni til að borga í Göngin á leiðinni norður, sem var þó nógu stutt þannig að hann fór bara aðeins yfir miðjuna. Í seinna skiptið var umferðin á þjóðvegi 1 nánast stopp þar sem að einhverjir bóndar voru að færa hestahóp meðfram veginum. Þar þurfti ég að snúa við og bruna í öfuga átt til að fá smá blástur á vatnskassann og fá bílinn til að kæla sig. Var sem betur fer mjög nálægt sjöppu svo ég stoppaði bara þar og beið þangað til vegurinn opnaði aftur.
En ég keyrði alla leið norður á 16" vetrarsettinu þar sem að bíllinn er það hjólaskakkur að hann spænir upp framdekkjunum ef ég er með 17" urnar undir. Síðan fórum við á þriðjudeginum heim og þá var strákurinn á Nissaninum farinn svo ég þurfti að taka 16" felgurnar og hjólatjakkinn með inní bíl. Ég nennti engan vegin að skipta yfir á 16" urnar þannig ég fór bara suður á 17" og núna eru framdekkin á þeim slétt, voru samt slitin fyrir og ég á tvö önnur.
Meðal eyðslan á leiðinni norður var 11,2 l/100km og á leiðinni heim 10,6 l/100km. Mjög há eyðsla finnst mér miðað við að E39 540iA hjá mér fór með 9,5 l/100km og það var ekki næstum því eins mikill afa akstur þar. Þyngri bíll með stærri vél. Sýnir bara hvað Vanos gerir mikið, þetta gamla M30 dót á ekki breik í M62.
Last edited by Danni on Thu 23. Jun 2011 04:26, edited 1 time in total.
Danni
'01 E46 330iA '99 E46 320i '98 Honda Civic 1.5i '17 VW Polo 1.2 TSi