Varðandi myndatökur ( á bílum )

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Varðandi myndatökur ( á bílum )

Postby Thrullerinn » Fri 09. Apr 2004 22:22

Datt í hug að koma með nokkra punkta varðandi myndatökur :idea:

1: Spáið aðeins í "regnhlífunum" sem tvístra ljósinu hjá pró ljósmyndurum, ský á lofti virka nákvæmlega eins og það er því langbest að taka myndir þegar það er skýjað.

2: Gott er að nota timera a myndavélum til að taka alveg "still" myndir. Nóg er að stilla vélinni upp á einhvern stein eða box og setja timerinn á..

3: Síðan er þægilegt að hafa þrífót..

4: Ekki eltast við þessi endalausu megapixel, gæðin liggja oftar en ekki í linsunum. Það nást betri myndir (á þeim vélum sem ég hef kynnst) í 3 megapixlum með góðri linsu heldur en 5 megapixla "pocket vél" með nálaraugalinsu.

5: Oft eru endurkast á flötum ruglandi. Mörg ljós og glampar geta virkað klaufalegir á myndum.... Einnig t.d. merkingar á bílastæðum o.fl. koma ekkert sérlega vel út sem speglun á hurðinni

6: Það er yfirleitt betra að taka mynd svolítið langt frá , svo myndin verði ekki "kúpt", helst að súma eins mikið inn og nota timerinn..

6: Ekki gleyma að taka myndir af bílunum ykkar !! Alltaf gaman að skoða þær á efri árum þegar maður fær engu ráðið lengur um hvernig bíl á að kaupa hehe ;)

Minns er aðeins að vinna við ljósmyndun og er mikið að taka utandyra, þessir punktar eru fínir svona til að byrja með. ;)
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby benzboy » Fri 09. Apr 2004 22:28

Án þess að ég hafi nú mikið vit á þessu vil ég samt koma með eina ábendingu varðandi að súma inn.
Málið er nefninlega að það er til tvennskonar zoom, þ.e.a.s. optical og digital. Optical zoom liggur í linsunni og það er einmitt zoomið sem menn ættu að nýta sér sem mest en digital zoom er hinsvegar byggt á stækkun á myndinni og þar með minnkun á gæðum. Þessvegna ber að varast það, sérstaklega ef upplausnin er ekki mikil fyrir.
Kannski vissu allir hér þetta en ef ekki vona ég að þetta komi líka að notum.
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)
User avatar
benzboy
Getawaybílstjóri
 
Posts: 834
Joined: Sat 03. May 2003 18:27

Postby Thrullerinn » Fri 09. Apr 2004 22:33

benzboy wrote:Optical zoom liggur í linsunni og það er einmitt zoomið sem menn ættu að nýta sér


Nákvæmlega !!
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby bebecar » Fri 09. Apr 2004 22:38

Þetta finnst mér að ætti að LÍMA - frábærir punktar. :idea:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Thrullerinn » Fri 09. Apr 2004 23:53

bebecar wrote:Þetta finnst mér að ætti að LÍMA - frábærir punktar. :idea:

Mikið er gaman að heyra það.. ég get ekki límt svona eftir á er það?
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby gunnar » Sat 10. Apr 2004 00:29

Mjög góðar ábendingar og ég mun alveg pottþétt reyna fara eftir þessu næst þegar maður byrjar að smella myndum :)
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Thrullerinn » Sat 10. Apr 2004 11:00

Hér má finna frábært yfirlit fyrir digital myndavélar...
:arrow: http://www.dpreview.com/
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby Jss » Sat 10. Apr 2004 15:59

Góðir punktar og góður linkur, mann langar alltaf í góða vél (spurning samt með notagildi hennar hjá manni :?).
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Svezel » Sat 10. Apr 2004 19:41

Mjög góðir punktar hjá þér sem ég á eflaust eftir að nýta mér næst. Hef einmitt verið að spá í þetta með að taka myndirnar aðeins frá bílnum en þegar ég ætlaði t.d. að taka myndir í gær þá var farið að rigna svo tók bara einn hring í kringum bílinn.

Svo er mikið til í þessu með þetta megapixelstríð, ég er t.d. með myndavél sem er aðeins 2megapixla Canon A40 en hún tekur samt fínar myndir því linsan er góð. Á heimilinu er einnig einhver 3megapixla Sony vél en mér finnst hún ekki taka jafn góðar myndir.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby rutur325i » Sun 11. Apr 2004 01:30

ég á svona vél , en er búinn að reyna að stilla hana svo mikið að ég er alveg búinn að fokka henni upp. er ekki einhver reset takki á þessu drasli ?
Renault 19 '95 - bráðabirgða
BMW E-30 325i; IM-870, Farinn
BMW E-30 320i; IR-406, Seldur
rutur325i
Getawaybílstjóri
 
Posts: 589
Joined: Tue 15. Oct 2002 14:44
Location: Grafarvogur

Postby Thrullerinn » Sun 11. Apr 2004 11:51

rutur325i wrote:ég á svona vél , en er búinn að reyna að stilla hana svo mikið að ég er alveg búinn að fokka henni upp. er ekki einhver reset takki á þessu drasli ?


Prófaðu að taka rahlöðurnar úr og nota ekki vélina í nokkra daga.. Oft dettur allt úr minninu. Yfirleitt þarftu að halda einhverjum takka inni í nokkrar sek. til að reseta vélina, stundum þarftu jafnvel að ýta á tvo í einu. Tjékka kannski á leiðbeiningunum :wink:
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby rutur325i » Sun 11. Apr 2004 17:27

ég er búinn að redda þessu . iar snillingur kenndi mér á þetta :)
Renault 19 '95 - bráðabirgða
BMW E-30 325i; IM-870, Farinn
BMW E-30 320i; IR-406, Seldur
rutur325i
Getawaybílstjóri
 
Posts: 589
Joined: Tue 15. Oct 2002 14:44
Location: Grafarvogur

Postby fart » Sun 11. Apr 2004 17:44

Ég er með þessa:

http://www.dpreview.com/reviews/specs/Canon/canon_sd10.asp

Image

Og er bara nokkuð sáttur með hana.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Thrullerinn » Sun 11. Apr 2004 20:42

Þetta er vélin sem ég nota, eini böggurinn við hana að það þarf að hreinsa hana árlega ef hún er mikið notuð, hún er nánast opin fyrir ryki. Þessi vél virkar hrikalega vel í góðri birtu en ekkert sérlega í "stofubirtu".
Image

Síðan henti ég inn nokkrum myndum inn í dag
Mátti til með að klína bílnum mínum inn á þennan þráð :D sorry
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby burri » Wed 19. May 2004 17:19

ekki það að ég eigi BMW þessa dagana en fynnst þetta er farið að snúast um ljósmyndun þá hlýt ég að meiga tjá mig hér.

svo er líka gaman að fuck the rules og hafa ekkert reflection og taka myndir í hálfgerðu myrkri á lengri tíma með baklýsingu.

Image
User avatar
burri
Kassabílstjóri
 
Posts: 141
Joined: Sun 06. Apr 2003 21:15
Location: reykjavik

Next

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests