Ég er búinn að vita af þessum bíl nokkuð lengi úr notkun. Alveg síðan haustið 2007.
Svo núna fyrir tilviljun datt mér í að hafa uppi á eigandanum á nýjan leik og viti menn.....
Ég keypti hann bara
Semsagt, þetta er "nýjasti" bíllinn minn.....
BMW E28 520i
Framleiddur í júlí 1983.
Innfluttur notaður til Íslands í apríl 1988.
M20B20 mótor.
Ekinn 383.984 km.
Beinskiptur
Aukabúnaður:
Dráttarkrókur
Krómhjólbogar
Drullusokkar allan hringinn
E21 skottspoiler
E21 húddskóp
Viðargírhnúi
NMT loftnet
Bíllinn er búinn að standa síðan um haustið 2007 þegar mótorinn gafst upp í honum.
Ég veit ekki nákvæmlega hvað er að vélinni en það kemur í ljós síðar.
Hef ekkert reynt að setja hann í gang eða neitt ennþá.
Bíllinn hefur verið í eigu 6 eigenda á undan mér en sami eigandi hefur átt hann frá 1995
Skondin tilviljun að sá sem flutti hann inn er nafni minn, Skúli nokkur að nafni.
Hann hefur frá árinu 1995 verið til heimilis að Laugarási í Bláskógarbyggð, Árnessýslu.
Þau hjónin stálu undan honum dekkjunum á einhverjum tíma og hefur hann staðið á klossum síðan þá.
Það kom mér á óvart að bíllinn var EKKERT fastur í bremsum eftir þessa 3 ára dvöl.
Um leið og ég hafði hent undir honum felgum þá rann hann bara mjúklega áfram upp á kerruna
Eins og venjulega, fylgja myndir úr ferðalaginu....
og eins og alltaf, þá fæ ég rigningu og rok þegar ég fer í svona ferðir
Bíllinn er merkilega heill miðað við aldur og fyrri störf
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)





