þetta er semsagt BMW E30 316i '88 keyrður um 140k. Keypti hann af "Jon Oskar" hér á spjallinu.
það er margt á "to do" listanum en ætla nú bara að ræða það þegar það er búið og gert.
Þar sem ég er nú bara 16 ára og fæ ekki prófið fyrr en í april 2010 þá hef ég nógan tíma til að dúttla í þessum
ég er alveg hæstánægður með þennan bíl, hann er alveg merkilega vel með farinn.
hér koma svo nokkrar myndir(koma fleiri þegar það er betra veður og bíllinn hreinn)






og já, ef einhver á súrefnisskynjara handa mér þá er ég til í að kaupa hann.







