Ég tapaði semsagt glórunni og skellti mér á eitt stykki E39 M5 um daginn.
Þetta mun vera 09/2000 eintak sem einhverjir hér kannast við.
Þvílíkur munur á þessum og 328i ! Ótrúlegt afl sem virðist alltaf vera til staðar allsstaðar ef maður vill. Það tekur smá tíma að venjast stærðar- og aflmuninum, til dæmis þá finnst mér E36 enn "klæða" mann betur, þ.e. E39 er einhvernveginn enn svo stóór... En þar sem ég er búinn að keyra E39 í nokkra daga en E36 í nokkur ár þá er kannski ekki svo skrítið að mér finnist E39 allt of stór.
Læt þetta duga í bili.. fleiri myndir og dót seinna.




