Allt verður prentað í réttu efni þegar fittið er komið á hreint.
M10 AFM - Bilaður flappi, festist bara
M10 DME - 9v á AFM voltage supply feedinu, efast að það sé rétt, sem gaf þá bandvitlaus volt, enn skipti engu þegar flappinn er fastur.

Var ekki viss með knastása merki, enn eyddi þá alltof miklum tíma í að finna úr því,
sagaði niður kveikjuna og lagaði til inní þannig að það væri bara einn pinni sem gengur í hring, sem dugar fyrir camsync
Bjó svo til nýtt lok með M54 eða eitthvað knastása skynjara sem ég fann á lausu hérna.




Gerði svo eins og allir fullorðnir gera og keypti verkfæri til að gera eitthvað smotterí


Svo einnig gerði ég bracket fyrir M10 til að runna R8 kefli, þessi kefli duga alveg í svakalegustu læti og kosta lítið sem ekkert.
Sendi svo STL skránna til E28 goodies gaursins og fékk hann til að gefa mér 2 bracket í staðinn fyrir að eiga hönnunina. Hann bjó þetta til og sendi mér svo.
Mjög sáttur við þetta.




Svo hélt ég áfram með wiring cover æfingarnar, eins einfalt og að kaupa E30 M3 dótið væri þá bara verður maður að gera þetta sjálfur er það ekki?
Ég er svo sannarlega 10% góður í CAD, þannig að þetta var meirháttar challenge að gera svona flókið yfirborð, enn maður lærði inná nokkur tricks til að ná svona.
Núna er ég með megnið coverað, enn á eftir að klára C101 hliðina, þetta er of flókið fyrir mig bara með svona mörg compound horn öll á sama stað.
Í síðustu myndinni má sjá relay haldarann sem ég bæti við, það er það sem er svo gott við þetta, maður prentar bara nýtt eins og þetta þróasta.






Svo þegar þetta var komið áleiðið, var hægt að framleiða ECU > Wiring cover loomið.
Það er auðvitað bara einfalt, tekur 47 víra frá tölvunni og leiðir að stóra tenginu.





Svo án þess að gera þetta rétt, þá gerði ég þetta bara flóknara með því að reyna prenta nýjar inntaks lagnir.
Það er 60mm OD á throttle body og ég er með Jaguar MAF sem er 70mm, eins lélegur og ég er þá tók þetta alveg stórkostlega margar tilraunir að fá eitthvað gáfulegt útur þessum æfingum.
Enn þetta er smooth transition eins og hægt er, á eftir að bæta við pre throttle map og idle valve, enn í staðinn fyrir að gera það þá fór ég í að búa til nýtt loftsíu box því að M10 boxið var ekki að fara fitta eftir að nýji vatnskassinn fer í (Z3 M 3.2), þannig að ég fór í þær æfingar, og aftur var maður hamlaður af hæfileikum og fáum hugmyndum og hvaða verkferli á að vera á svona.
Enn þetta er allt að vera komið. Gamli lausagangs loftflæði gaurinn sem er hitastýrður er farinn og allar lagnirnar með honum og auka spíssanum sem er venjulega á M10, í staðinn er kominn map skynjari á soggreinina sem og heatsoak hita skynjari(notaður í samanburði seinna). Fullt fullt af útgáfum framleiddar á leiðinni.
Þetta er E46 loftsía, sem er sama sían í 325i og uppí E46 M3, þannig að það verður ekkert viðnám fyrir M10 vélina.









_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
