BMW 323CI e46

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

BMW 323CI e46

Postby oskar9 » Sat 30. Jun 2012 18:32

var að versla þennan úr borginni,fyrri eigendur hafa ekki allveg áttað sig á því að þetta væri sjálfskiptur 323 bíll, þar búið er að setja í hann illa frágenginn loftsíusvepp, oil press mæli, A/F mæli og Vacum mæli, illa tengdir og sýndu bara eitthvað bull, einnig fokkuðu þessir mælar uppí mælaborðinu sem olli því að það endurræsti sig reglulega, búinn að fjarlægja mælana og mælaborðið komið í lag.

Versla líklega orginal lofsíubox eða kaupi K&N kit og geri þetta almennilega

bíllinn er ágætlega búinn og ber helst að nefna

Glerlúga.
Leður allstaðar
Harman/Kardon hljóðkerfi
glænýtt BMW þriggja arma stýri
rafmagn í báðum sætum
rafmagn í afturrúðum ( kanski standard ekki viss)
eina sem ég sakna er AC en hann er grár á litinn svo hann verður ekki svo heitur

Plön eru:

Logar ljós hjá skiptingu í mælaborði, tannhjól með upphrópunarmerki, hefur enginn áhrif á skiptinguna en Eðalbílar lásu af honum og þetta stafar af því að bíllinn heldur að staðið sé á bremsunni meðan verið er að gefa í, líklega einhver skynjari.
Sést hér: http://i122.photobucket.com/albums/o271 ... ROBLEM.jpg

mála á honum húddið, hefur verið illa málað og þarf að gera það aftur
ganga betur frá loftsíumálum
koma truflanir í hátalarana frá Angel eyes kerfinu, þarf að kíkja á það
sprauta skottlok, komið aðeins ryð í það
rúða farþegameginn er aðeins laus í og skröltir aðeins ef rúðan er allveg lokuð
kaupa ný afturljós, þessi eru sprungin og fyllast að raka, vantar ljós með glærum stefnuljósum
Bremsudiskar og klossar hringinn

Annars er ég í rándýru námi núna svo ég er ekkert að fara moka í hann peningum, en ætla að koma honum í gott orginal stand og gera hann snyrtilegan

set inn nokkrar myndir:

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image
VW Touareg V8
Audi 90, 2.8
BMW 540IA
Alpina B-10 V8
Lexus SC-400
User avatar
oskar9
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 94
Joined: Sat 28. Mar 2009 16:28

Re: BMW 323CI e46

Postby SteiniDJ » Sun 01. Jul 2012 14:14

Smekklegur bíll og skemmtilög plön. Þau eru eitthvað óeðlilega eðlileg m.v. það sem menn setja sér oft hérna á nýjum bílum og er það flottur kostur. :thup:

Annars er ég með notuð OEM afturljós til sölu á pre-facelift coupe sem voru á mínum á sínum tíma.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður


Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 47 guests