bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bjórsamkoman sem var 7. Mars
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=986
Page 1 of 2

Author:  saemi [ Sat 08. Mar 2003 12:59 ]
Post subject:  Bjórsamkoman sem var 7. Mars

Jæja, þá er samkomunni lokið og kúturinn löngu búinn :!:

Þessi samkoma tókst bara með ágætum og mættu þó nokkrar BMW hnetur, eða um 16 stykki. Að sjálfsögðu mæta fleiri næst.

Horft var á myndbönd með öðru auganu og reynt að halda sambandi við þann sem maður var að spjalla við með hinu. Ég skemmti mér hið besta og man nú miklu betur nöfnin á bakvið "nikkin". Þetta var alveg nauðsynlegt til að "aftölvunördast" smávegis, sjá andlitin á bakvið "nikkin".

Gunni Lorenz á miklar þakkir skildar fyrir að koma þessu í kring og standa í öllu snattinu kringum þetta.

Þökkum Sveinbirni (alpina) svo kærlega fyrir að koma með spóluna, hún vakti mikla lukku.

Og náttúrulega öllum sem mættu fyrir að taka þátt. Sjáumst úti í góða veðrinu í sumar 8)

Sæmi

Author:  Svezel [ Sat 08. Mar 2003 14:19 ]
Post subject: 

Já þessi samkoma var snilld og bjórinn var góður...of góður :oops:

Verst að ég man lítið sem ekki neitt eftir því sem gerðist eftir Glaumbar :?

Author:  Gunni [ Sat 08. Mar 2003 14:31 ]
Post subject: 

já þetta var algjör snilld og allt flæðandi í bjór. við áttum í smá erfiðleikum með að klára kútinn, en það tókst :lol:

Það er alveg á hreinu að við gerum þetta aftur, og þá mæta vonandi aðeins fleiri (þá getum við keypt meiri bjór :) )

Svezel ég og Daníel reyndum að hringja í ykkur en það var bara slökkt á símanum hans Óðins! þið hafið kannski verið farnir heim að sofa eða eikkvað :)

þynnkukveðjur, Gunni

Author:  Svezel [ Sat 08. Mar 2003 14:40 ]
Post subject: 

Já kúturinn ætlaði aldrei að klárast og menn farnir að sturta í sig bjórnum undir lokin :D

Ég held að síminn hans Óðins hafi orðið rafmagnslaus og ég gleymdi mínum á Glaumbar. Það eina sem ég veit að við fórum á Þjóðleikhúskjallarann og kom mér heim um 3 í mjög annaárlegu ástandi eftir að hafa málað bæinn rauðan :roll:

Author:  Djofullinn [ Sat 08. Mar 2003 16:23 ]
Post subject: 

Þetta var mjög vel heppnað og skemmti ég mér helvíti vel, kannski of vel.... úff mar er þunnur, var að vakna fyrir hálftíma :?
Þetta var gott tækifæri til að kynnast þeim sem MÆTTU á "annan hátt", allir ofurölvi (nema Bjarni) í þvílíkum fílíng :!:
Mér er strax farið að hlakka til næsta bjórkvölds :D

Author:  iar [ Sat 08. Mar 2003 16:40 ]
Post subject: 

Sammála! Þetta var mjög gaman að hitta liðið og rabba "á léttu nótunum" :lol:

Author:  bjahja [ Sat 08. Mar 2003 19:18 ]
Post subject: 

Já þetta var mjög gaman. Síðan vaknaði maður klukkan 9 í morgun hress og kátur beint í vinnuna, skiljanlega ekki þunnur.

Já eins og sæmi sagði þá var gaman að "sjá andlitin á bakvið "nikkin"."

En djöfull áttu þið erfitt með að tæma kútinn, þið voruð ekki að standa ykkur :P

Author:  hlynurst [ Sat 08. Mar 2003 19:44 ]
Post subject: 

Helvítis... mér langaði að koma. Hefði bara átt að koma með blessaða tektina þá hefði engin vandamál verið með þennan kút!

Author:  rutur325i [ Sat 08. Mar 2003 19:59 ]
Post subject: 

já þetta var helvíti gaman.
hlakka til næstu öl samkomu og vonandi mæta fleiri þá :P

Author:  siggiii [ Sat 08. Mar 2003 20:24 ]
Post subject: 

Ég kem öruglega næst var að vinna snökt, snökt.

Author:  sh4rk [ Sat 08. Mar 2003 22:49 ]
Post subject: 

Verst að ég komst ekki ut af því að bíllinn minn tók upp á því að bila á leiðinni í bæinn :(

Author:  Óðinn [ Sun 09. Mar 2003 03:01 ]
Post subject: 

Ója þetta var snilld, gaman að hitta liðið og tjatta..
öö já og svenni úff :o svona man ég síðast eftir munninum á þér.
En svona er þetta þegar menn versla botnlausann kút þá er fjandinn laus..

Author:  Bjarki [ Sun 09. Mar 2003 17:08 ]
Post subject: 

Mjög skemmtileg samkoma og bjórinn rann vel! Ég fór út úr bænum eftir samkomuna og félagi minn koma að sækja mig klukkan 1 það tók hann víst rúmar 30 mín að ná mér þarna út!! :lol:

Author:  Haffi [ Sun 09. Mar 2003 21:25 ]
Post subject: 

Djöfulsins andskotans synd að hafa ekki farið!! Ætlaði að vera góður á því fór með kellu í bláalónið svo þegar við komum heim þá steinsofnaði ég og vaknaði ekki fyrr en klukkan hálf eitt !!

Jæja verður bara að bíða betri tíma að hitta ykkur. :cry:

Author:  saevar [ Mon 10. Mar 2003 11:36 ]
Post subject: 

Ég kíkti inn á glaumbar þegar árshátíðin var búin hjá mér. Og þá voru allir horfnir (held ég). Var svoldið léttur á mér sko og það gæti vel verið að ég hafi bara ekki séð ykkur :twisted: .

En ég skal mæta næst og þá þurfiði ekkert að hafa áhyggjur um að bjórinn klárist ekki :lol:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/