bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Samkoma í þýskalandi sem ég skellti mér á https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=946 |
Page 1 of 1 |
Author: | saemi [ Sun 02. Mar 2003 13:38 ] |
Post subject: | Samkoma í þýskalandi sem ég skellti mér á |
Sælir félagar. Ætlaði bara svona rétt að segja frá samkomu sem ég kíkti á í Köln þegar ég var úti í Febrúar 2003. Ég var búinnn að vera í sambandi við hana Gertie, sem er formaður bmwe23.de ( http://www.bmwe23.de ) klúbbsins þarna úti í þýskalandi. Þetta er klúbbur fyrir gömlu sjö línuna (E-23) frá 1977-1987. Nú skemmst er að segja frá því að hún bauð mér að koma og kíkja á þau, en það var búið að skella á samkomu á þeim tíma sem ég var úti í Belgíu. Það passaði mjög vel fyrir mig að kíkja á þetta og ég keyrði upp eftir til Kölnar á 745i bílnum sem ég keypti úti, þannig að ég var á réttum bíl og allt! Þetta var nú bara svona svipað eins og hefur verið hjá okkur, allir bara að hittast og spjalla. Það var ekkert spes þema hjá þeim á þessum fundi, þetta var bara svona inn-á-milli fundur. En þau fara líka í spes ferðir, t.d. Hockenheim og Nurburgring á sumrin. ![]() Ég talaði þarna þýsku 60% og ensku 40% og það sauð alveg á heilanum á mér þegar ég fór heim um kvöldið, þar sem ég er enginn þýskusnillingur. Þetta byrjaði klukkan 13:00 og ég var þarna allan tíman þangað til um 21:00. En að sjálfsögðu voru ekki allir allan tíman. Á þessum fundi sá maður síðasta eintakið af E23 "Highline" bílnum sem var framleiddur, mjög flottur. Svo var líka þarna 320i bíll sem er í Mars útgáfu "Total BMW" tímaritsins, allgjör gullmoli. Þetta var mjög gaman og ég ætla örugglega að kíkja aftur á svona fund í sumar, þegar maður getur verið meira úti að skoða bílana! Það var svo assgoti kalt þarna úti, svipað eins og niðrá höfn hjá okkur í haust. Jæja, nóg í bili. Sæmi |
Author: | saemi [ Sun 02. Mar 2003 23:42 ] |
Post subject: | |
http://www.bmwe23.de/1__e23_clubtreffen_2003.htm Fann fleiri myndir og texta frá samkomunni. Bara að bursta rykið af þýskunni og demba sér í textann! Meira að segja mynd af mér! ![]() Sæmi |
Author: | Bjarki [ Sun 02. Mar 2003 23:44 ] |
Post subject: | |
Mjög cool að skella sér á samkomu í Þýskalandi og á rétta bílnum og alles ![]() |
Author: | Gunni [ Mon 03. Mar 2003 00:05 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: http://www.bmwe23.de/1__e23_clubtreffen_2003.htm
Fann fleiri myndir og texta frá samkomunni. Bara að bursta rykið af þýskunni og demba sér í textann! Meira að segja mynd af mér! ![]() Sæmi hehe góð moppa á þjóðverjanum ![]() |
Author: | iar [ Mon 03. Mar 2003 18:08 ] |
Post subject: | |
Áhugaverður Alpina bíllinn við hliðina á rauða þristinum. Hvaða módel er þetta? |
Author: | saemi [ Mon 03. Mar 2003 19:00 ] |
Post subject: | |
Þetta var ábyggilega 735 eða 750. Ég skildi nógu mikið í þýskunni til að ná að þetta væri plat. Meiri áráttan að skella svona plat á bílana sína.. Sæmi |
Author: | iar [ Mon 03. Mar 2003 19:23 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: Meiri áráttan að skella svona plat á bílana sína..
Sammála... þvílíkt rugl. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |