bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bjórkvöld og spurningakeppni 20. nóvember
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=7982
Page 6 of 7

Author:  srr [ Sun 21. Nov 2004 19:16 ]
Post subject: 

Ég vil þakka kærlega fyrir mig, þetta var frábært kvöld 8)
Þeir sem komu að skipulagi og framkvæmd eiga hrós skilið
Leiðinlegt að þurfa enda kvöldið :puker: á Pravda :cry:
Annars var allt fram að þeim tíma mjög skemmtilegt. Ég var að hitta mjög marga þarna í fyrsta skipti og ég get ekki annað en sagt að þetta sé skemmtilegur hópur :)
Hlakka til næstu samkomu....

Ég var víst undir viðurnefninu GST bróðir í gær, fyrir þá sem muna ekki eftir mér :P

Author:  O.Johnson [ Sun 21. Nov 2004 21:35 ]
Post subject: 

Jahérna ég = :drunk: :drunk: :drunk:

Er en að reyna að púsla kvöldinu saman í huganum en gengur eitthvað erviðlega með það sem gerðist eftir spurningakeppnina :roll:

Author:  Svezel [ Sun 21. Nov 2004 22:04 ]
Post subject: 

Já ég gleymdi víst að þakka fyrir mig, þessi inneignarávísun frá B&L er snilld og svo er krafturinn náttúrlega solid klúbbur :)

En já ég er í sama pakka og O.Johnson, minnið hefur yfirfyllst eitthvað fyrir miðnætti held ég bara... :roll:

Author:  gstuning [ Sun 21. Nov 2004 22:39 ]
Post subject: 

jæja þá,

þetta var nú naumast kvöld ,,
skemmdi buxurnar mínar og þær voru hangandi á mér þangða til að stefán lánaði mér beltið sitt,

Ég var víst kyssa einhverja sluttí stelpu en man sjálfur ekki eftir því,
og ég rataði já inná 22, samt reddaðist allt á endanum eins og það gerir alltaf :)

Þetta þarf að gerast aftur sem fyrst, þá bjórinn :)

Takk fyrir mig allaveganna

Author:  Jss [ Sun 21. Nov 2004 22:44 ]
Post subject: 

Takk fyrir skemmtilegt kvöld, vel að öllu staðið og frábær stemning. :D

Author:  Joolli [ Mon 22. Nov 2004 02:07 ]
Post subject: 

Virkilega gaman að hitta ykkur aftur... Með eindæmum hressir tappar! Solid hópur!

Takk fyrir mig!

Author:  iar [ Mon 22. Nov 2004 11:00 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Bjarkih wrote:
Hvenær fáum við hin sem gátum ekki mætt (t.d. vegna hnattfræðilegrar stöðu) að sjá niðurstöður spurningakeppnnar og helst einhverjar myndir líka.


Efa ekki að .......iar.... muni nota kunnáttu sína og koma þessu í kring


Þetta kemur allt saman. Er fyrst að komast í tölvu núna í dag. Hendi myndunum inn á eftir og úrslitin koma svo fljótlega.

Ég vil annars bara þakka fyrir mig! Alpina fær sérstakar þakkir fyrir hjálpina! Þetta tókst alveg bærilega og við bara stefnum á að gera þetta aftur ekki seinna en að ári! :-)

Author:  iar [ Tue 23. Nov 2004 10:01 ]
Post subject: 

Nokkrar myndir eru komnar inn í myndasafnið!

Author:  force` [ Tue 23. Nov 2004 13:31 ]
Post subject: 

hehe sniðugar myndir, skúli er liggur við á þeim öllum lol..
en já þessi staður virkar á mig eftir þessum myndum eins og RISASTÓRT
baðherbergi. Fallegt :? eða þannig..
Fegin að hafa aldrei komið þangað inn lol

Author:  Haffi [ Tue 23. Nov 2004 18:12 ]
Post subject: 

jari jari þessi staður ownar :)
Djefúll var gaman að þessu 8)

Author:  bjahja [ Wed 24. Nov 2004 00:35 ]
Post subject: 

force` wrote:
hehe sniðugar myndir, skúli er liggur við á þeim öllum lol..
en já þessi staður virkar á mig eftir þessum myndum eins og RISASTÓRT
baðherbergi. Fallegt :? eða þannig..
Fegin að hafa aldrei komið þangað inn lol

Þessar myndir eru teknar í einu herbergi á staðnum, séstöku VIP herbergi sem kallað er sundið. En ég meina, þetta er ekki fyrir alla og skil það vel ;)

Author:  iar [ Wed 24. Nov 2004 09:17 ]
Post subject: 

srr wrote:
Ég var víst undir viðurnefninu GST bróðir í gær, fyrir þá sem muna ekki eftir mér :P


Ah :idea: Gott mál! Ég missti alltaf af nafninu.. hafði ekki hugmynd að þú værir á spjallinu.

Gott að sjá ný andlit öðru hvoru á samkomum! :-D

Author:  iar [ Wed 24. Nov 2004 10:38 ]
Post subject: 

Jæja.. þá eru það úrslitin í fyrstu spurningakeppni BMWKrafts!

Níu manns kepptu og var dregið í þrjú lið og keppt í þremur 16 spurninga umferðum.

Úrslitin urðu eftirfarandi:

1. Typpaostarnir (12+13+9 = 34 stig) - meðlimir: Haffi, Stefan325i og Svezel
2. Harðfiskarnir (12+10+10 = 32 stig) - meðlimir: Bjarki, Hlynur og Sæmi
3. Lið 2 (9+5+10 = 24 stig) - meðlimir: GSTuning, Kull og O.Johnson


Sigurvegararnir fengu sérdeilis glæsileg verðlaun frá B&L, hver meðlimur liðsins fékk gjafabréf fyrir 5.000kr. Einnig var dregið úr nöfnum annarra þáttakenda og sá heppni (O.Johnson) fékk einnig 5.000kr gjafabréf.

B&L fær sérstakar þakkir fyrir glæsileg verðlaun! Og við þökkum einnig starfsfólki Pravda fyrir góðar móttökur og fína aðstöðu!

:clap: Bestu þakkir fyrir skemmtilegt kvöld og góðar viðtökur! :clap:

Author:  Kristjan [ Wed 24. Nov 2004 10:54 ]
Post subject: 

Þetta lítur út fyrir að hafa verið afbragðs kvöld. Alltaf svekkjandi að vera fastur hérna uppá jökli í beljandi austanátt og rigningu.

ps. Var að skoða myndirnar og helvíti góð myndin af sigurliðinu, þeir félagar eru ekkert smá góðir með sig hahaha sérstaklega Svezel... alveg íííískaldur, næstum því jafn svalur og hann Limahl félagi minn hérna <<<<<

Sjá hér

Author:  Gunni [ Wed 24. Nov 2004 13:35 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
Þetta lítur út fyrir að hafa verið afbragðs kvöld. Alltaf svekkjandi að vera fastur hérna uppá jökli í beljandi austanátt og rigningu.

ps. Var að skoða myndirnar og helvíti góð myndin af sigurliðinu, þeir félagar eru ekkert smá góðir með sig hahaha sérstaklega Svezel... alveg íííískaldur, næstum því jafn svalur og hann Limahl félagi minn hérna <<<<<

Sjá hér


HAHAHAHA djöfull virðist haffi vera búinn að strjúka sér vel og lengi með brúnkuklút eða einhverju álíka! :rofl:

Page 6 of 7 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/