bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMWKrafts-sýning á BMW 1-línunni
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=7684
Page 1 of 3

Author:  Gunni [ Wed 06. Oct 2004 13:23 ]
Post subject:  BMWKrafts-sýning á BMW 1-línunni

Á fimmtudagskvöld þann, 21. október, verður sýning á BMW 1-línunni fyrir BMWkrafts meðlimi í húsakynnum B&L að Grjóthálsi 1.

Húsið opnar klukkan 18:00 og sýningin hefst klukkan 18:30. Húsið lokar svo klukkan 20:30

Léttar veitingar verða í boði (m.a. Öl og gos). Í ljósi þess vilja BMWkraftur og B&L mælast til þess að þeir sem hyggjast njóta áfengra veiga hugi að heimferð með öðrum hætti en að sitja undir stýri :wink: Einnig höfðum við til samviskusemi þeirra sem ekki hafa aldur til, á þá leið að þeir haldi að sér höndum varðandi öldrykkju og fái sér frekar gos :P

Eins og fyrr segir þá er aðal tilefni sýningarinnar sýning á nýju 1-línunni. Gefst nú meðlimum BMWkrafts einstakt tækifæri til að koma á þessa sýningu og fá einkar góða kynningu á vagninum, ásamt góðum veitingum.

Einn fremsti tæknimaður B&L, hann Bjarki (sem margir muna eftir frá B&L deginum) mun standa í fararbroddi kynningarinnar. Bjarki ku vera mjög fróður maður um BMW bifreiðar og er meira en fús til að svara öllum þeim spurningum sem kunna að vakna!

Author:  hlynurst [ Wed 06. Oct 2004 13:57 ]
Post subject: 

Maður mætir... verður gaman að sjá þennan bíl. :)

Author:  gunnar [ Wed 06. Oct 2004 14:24 ]
Post subject: 

Mæti 150 % ! :)

Author:  davidg [ Wed 06. Oct 2004 14:49 ]
Post subject: 

Ekki vill maður missa af þessu.....

Author:  oddson [ Wed 06. Oct 2004 14:51 ]
Post subject: 

já uss maður verður þokkalega að mæta... sagðiru ekki örugglega öl :clap:

Author:  Logi [ Thu 07. Oct 2004 13:07 ]
Post subject: 

Ekki spurning að maður mætir! Þetta verður ,,,,,BARA,,,,, gaman :D

Author:  Thrullerinn [ Thu 07. Oct 2004 13:09 ]
Post subject: 

Verður maður ekki að mæta ;)
Öl og snittur, öl og síðan meira öl .. 8)

Author:  Jón Ragnar [ Sun 10. Oct 2004 19:10 ]
Post subject: 

hver vill bjóða mér :oops:
get ekki borgað meðlimagjaldið alveg strax :cry:

Author:  Joolli [ Wed 13. Oct 2004 00:37 ]
Post subject: 

Haffi tekur bara Johnny! Útrætt mál.

Author:  Haffi [ Wed 13. Oct 2004 01:44 ]
Post subject: 

wtf?!?!

Author:  rutur325i [ Wed 13. Oct 2004 08:49 ]
Post subject: 

ég mæti pottþétt , hljóp aðeins á mig reyndar, hélt að þetta væri á morgun svo ég sagði "kemst ekki :( " pant samt ekki vera á bíl........

Author:  Svezel [ Wed 13. Oct 2004 08:59 ]
Post subject: 

Ég held að þetta sé alveg málið og ég ætla EKKI að vera á bíl :roll:

Author:  HPH [ Wed 13. Oct 2004 13:30 ]
Post subject: 

ég ætla að vera þarna þú að ég sé ekki með orðinn meðlimur.

Author:  iar [ Thu 14. Oct 2004 22:26 ]
Post subject: 

rutur325i wrote:
ég mæti pottþétt , hljóp aðeins á mig reyndar, hélt að þetta væri á morgun svo ég sagði "kemst ekki :( " pant samt ekki vera á bíl........


Eigum við ekki bara að slá saman í leigara úr Mos? Ég rölti yfir til þín og við tökum bíl þaðan. :-D

Author:  Gunni [ Tue 19. Oct 2004 09:57 ]
Post subject: 

Jæja þau hjá B&L voru aðeins of fljótfær við val á dag. Það kom í ljós í gær að daginn sem þetta átti að vera verður haldið eitthvað voða afmæli hjá B&L.

Þess vegna var deginum breytt í fimmtudaginn 21. október, sem er í þessari viku!!!


Vonandi taka sem flestir eftir þessu !!

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/