Page 1 of 6

"Dyno" dagurinn 4. september - breytt áætlun -

PostPosted: Tue 31. Aug 2004 18:21
by saemi
Jæja kæru félagar. Það ætlar ekki að ganga áfallalaust að fá í gegn hestaflamælingu fyrir sjálfrennireiðar okkar.

Búnaðurinn hjá T.B. er bilaður og verður að senda hann utan til að gera við, svo við verðum því miður að slá Dyno-mælinguna af næstkomandi laugardag.

En góðu fréttirnar eru hins vegar að við höfum ákveðið að efna til samkomu í staðinn og hljómar áætlunin svona:

14:00 Laugardaginn 4. september. Mæting í keiluhöllina og verður þar stundaður kúluþeytingur um stund.

Eftir þetta er ætlunin að halda á skjólgóðan stað og slá upp grilli þar sem hamborgarar verða á boðstólum fyrir soltna BMW-krafts félaga.


Vonumst til að sjá sem flesta, nú fer að verða síðasti séns að hittast áður en kuldaboli tekur völdin.

Kveðja,
Stjórnin.

PostPosted: Tue 31. Aug 2004 18:37
by Jón Ragnar
Kúl :D má maður mæta þótt maður sé ekki gildur meðlimur?

PostPosted: Tue 31. Aug 2004 18:39
by Svezel
Will there be beer :roll:

Ég reyni að mæta

PostPosted: Tue 31. Aug 2004 18:45
by Stefan325i
það er hátíð í keflavík þessa helgi Svokölluð ljósanótt mega stuð þannig að ég kem sennilega ekki, ekki nema að þið grillið í kef við höldum bara party hjá gunna hann er öruglega til er það ekki gunnnnnni ????

PostPosted: Tue 31. Aug 2004 19:25
by Alpina
Þið eruð nú meiri HÁLVITARNIR,,,,,, ((afsakið orðbragðið,,ekki illa meint))
Annað hvort er ég svona illa liðinn,, eða þetta hittir ,,,ALLTAF svona VEL//ILLA fyrir mig//ykkur
Er að fara utan 3/9 og kem heim 8/9 10/9 verður M/techII kominn á götuna :x :x :x :x :x :x :x :x

PostPosted: Tue 31. Aug 2004 19:37
by Haffi
úff súrmeti!

En Stefan ég mæti á ljósanótt ;)

PostPosted: Tue 31. Aug 2004 20:41
by saemi
Alpina wrote:Þið eruð nú meiri HÁLVITARNIR,,,,,, ((afsakið orðbragðið,,ekki illa meint))
Annað hvort er ég svona illa liðinn,, eða þetta hittir ,,,ALLTAF svona VEL//ILLA fyrir mig//ykkur
Er að fara utan 3/9 og kem heim 8/9 10/9 verður M/techII kominn á götuna :x :x :x :x :x :x :x :x


Hehehe, aumingja þú Sveinbjörn.. það var nú samt búið að festa þennan dag fyrir löngu :? En þetta hittir alltaf mega illa á fyrir þig já. Verðum að hafa þig með í ráðum næst.

Já Gunni.. grilla heima hjá þér. Það virkar alveg, væri flott að brenna bara suður eftir 8)

PostPosted: Tue 31. Aug 2004 20:58
by Alpina
segi eins og Haffi~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~>> mega súrt

PostPosted: Tue 31. Aug 2004 21:22
by fart
ég er sáttur við frestunina.. skynjarinn minn er ekki til og seinkar.

PostPosted: Wed 01. Sep 2004 01:23
by bjahja
Keila og svo grill í keflavík?...........I like it :D :wink:

PostPosted: Wed 01. Sep 2004 01:28
by Haffi
gefst líka færi á að checka á sveita teenzlunum 8)

PostPosted: Wed 01. Sep 2004 08:03
by fart
Haffi wrote:gefst líka færi á að checka á sveita teenzlunum 8)


hohoho... Búinn að brenna allar brýr í bænum?

PostPosted: Wed 01. Sep 2004 09:02
by gstuning
Ekkert mál

Partý heima hjá mér á ljósanótt
Þið eruð velkomnir að grilla og læti það er minnsta málið, bara að fylla götuna sem ég bý í með BMW þá verð ég sáttur, Mr.S50 verður á svæðinu til að skoða :)

PostPosted: Wed 01. Sep 2004 09:17
by Svezel
úJe 8)

PostPosted: Wed 01. Sep 2004 12:22
by Schnitzerinn
DÚFNAHÓLAR 10 !!!!! :P \:D/ :king: