bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Ljósanótt 2014 í Keflavík - Laugardagurinn 6. september
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=67188
Page 1 of 1

Author:  srr [ Tue 02. Sep 2014 10:02 ]
Post subject:  Ljósanótt 2014 í Keflavík - Laugardagurinn 6. september

Ljósanótt 2014 - Laugardagurinn 6. september

Sem sjálfskipaður formaður fornbíladeildar BMWKrafts þá langar mig að vekja athygli ykkar á Hóprúnt og Bílasýningu sem er alltaf í tengslum við Ljósanótt í Keflavík.
Aðeins,,,,já aðeins fornbílar mega mæta í þennan rúnt og verður því gaman að sjá sem flesta gamla BMW bíla fjölmenna á Ljósanótt 2014.
Ég og fleiri höfum undanfarin ár alltaf mætt og það er skemmtileg stemmning í hóprúntinum.
Með BMW kveðju,
Skúli R. - srr
Meðfylgjandi eru nánari upplýsingar varðandi viðburðina tvo.

Image

Author:  rockstone [ Tue 02. Sep 2014 10:46 ]
Post subject:  Re: Ljósanótt 2014 í Keflavík - Laugardagurinn 6. september

1988? eru ekki 1989 orðnir fornbílar?

Author:  srr [ Tue 02. Sep 2014 10:53 ]
Post subject:  Re: Ljósanótt 2014 í Keflavík - Laugardagurinn 6. september

rockstone wrote:
1988? eru ekki 1989 orðnir fornbílar?

Allir sem eru komnir með fornbílaskráningar aldur jú.
Sumir 1989 eru á þessu ári, fer eftir nýskráningardegi á Íslandi samt.

Author:  Alpina [ Wed 03. Sep 2014 01:36 ]
Post subject:  Re: Ljósanótt 2014 í Keflavík - Laugardagurinn 6. september

Smá OT,, varðandi fornbílana... bílar sem eru/verða 25 ára eftir 1988 fá ..EKKI steðjaplötur

Author:  srr [ Wed 03. Sep 2014 09:49 ]
Post subject:  Re: Ljósanótt 2014 í Keflavík - Laugardagurinn 6. september

Alpina wrote:
Smá OT,, varðandi fornbílana... bílar sem eru/verða 25 ára eftir 1988 fá ..EKKI steðjaplötur

Satt. Enda bara fyrir bíla sem gátu fengið þær upprunalega. S.s. áður en hvítu plöturnar komu.

Author:  Páll Ágúst [ Wed 03. Sep 2014 23:43 ]
Post subject:  Re: Ljósanótt 2014 í Keflavík - Laugardagurinn 6. september

Hvað er info á hitting hjá bubba og félugum?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/