bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

GO - KART og B J Ó R K V Ö L D - Laugardagurinn 24. júli
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=6666
Page 1 of 6

Author:  Gunni [ Fri 02. Jul 2004 12:29 ]
Post subject:  GO - KART og B J Ó R K V Ö L D - Laugardagurinn 24. júli

Nú hvet ég alla til að geyma allt annað sem þeir gætu mögulega kannski haft og gera þann 24. júlí því að hér á eftir koma 2 gríðarlega magnaðar tilkynningar !!!

BMWKraftur ætlar að fara í GO-KART laugardaginn 24. júlí kl 14:00 á GO-KART brautinni í Reykjanesbæ.

Við ætlum að hittast á uppi á "Stöð" á Reykjavíkurvegi (Þar sem Esso, Dekkjaverkstæðið og Shell eru, ásamt Löðri) eigi síðar en kl 12:30 og leggja af stað kl 12:45. Það er MJÖG mikilvægt að við leggjum af stað kl 12:45 því eigandi go-kartsins vill að við verðum mættir kl 13:15 til sín.


Verð á mann verður 2000-2500 kr og fer það eftir því hvernig aksturinn verður skipulagður. Það verður ákveðið þegar nær dregur, með Ragga M5 sem sérstakann ráðgjafa. (Ef einhver er með hugmynd má hann láta í sér heyra í PM).

Það væri mjög gott ef þeir sem ætla að mæta í GO-KART sendi mér línu á gunni@bmwkraftur.is með topicinu GO-KART. Hver greiðir fyrir sig á staðnum!


---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Jæja þá er loksins komið að því. Í tilefni að 2 ára afmælis BMWKrafts 9. júlí nk. verður haldið bjórkvöld þann 24. júlí!. Þetta verður með svipuðum hætti og síðast (fyrir ykkur sem mættu þá). Partyið verður haldið á Glaumbar Laugardaginn 24. júlí og byrjar gleðin kl 20:00. Þar er risaskjár þar sem við getum horft á bílavídjó og annað slíkt.


Planið er að gildir meðlimir borga 1.000 kr., en aðrir borga 1.500 kr. Það verður allt fljótandi í bjór og snakki á staðnum. Þeir sem borga fyrir bjór fá miða hjá okkur sem þeir afhenda á barnum til að fá “frían bjór”. Tilboð verða einnig á barnum.

Bjórinn verður meiri en áður hefur sést og ef að þetta verður ekki all svaðalegsta party sem menn hafa upplifað lengi þá skal ég hundur heita!

Ef einhver hefur undir höndum vídjó sem gæti verið við hæfi að sýna þarna eru beðnir að hafa samband við Gunnar í s. 822-2244 eða e-mail gunni@bmwkraftur.is

Þeir sem ætla að mæta VERÐA að borga fyrirfram. Það gera þeir með því að leggja pening inná reikn. 0322-26-002244 kt. 510304-3730. Þegar því er lokið skal senda e-mail á netfangið party@bmwkraftur.is og skrifa bara í topicið dagsetningu þegar borgað var, Fullt nafn, notandanafn, kennitölu og GSM símanúmer.
T.d. 150704 Jón Jónsson nonnijons 010101-9999 s. 899-9999

Við vonum að það mæti sem flestir (þetta er nú ágætis fyrirvari) því það var alveg endalaus rífandi stemming síðast!

Kveðja, Bjórnefndin

p.s. við hvetjum alla þá sem ætla að súpa öl að skilja bifreiðar eftir heima

Author:  gstuning [ Fri 02. Jul 2004 12:46 ]
Post subject: 

Ég kem súkkulaði brúnn frá spáni í þessa vitleysu :)

Geðveikt

Author:  Haffi [ Fri 02. Jul 2004 12:47 ]
Post subject: 

Count me in !! 8)

Author:  fart [ Fri 02. Jul 2004 12:55 ]
Post subject: 

Verð á erlendi.

Author:  hlynurst [ Fri 02. Jul 2004 12:59 ]
Post subject: 

Count me in!!!

Djöfull hljómar þetta vel hjá ykkur. :D

Author:  Kristjan [ Fri 02. Jul 2004 13:53 ]
Post subject: 

Ég kem ef ég verð ekki að vinna... kemur allt í ljós bara ;)

Author:  Jss [ Fri 02. Jul 2004 13:59 ]
Post subject: 

Ég kem nánast pottþétt, nema eitthvað komi uppá. ;)

Author:  Twincam [ Fri 02. Jul 2004 15:26 ]
Post subject: 

þetta lýst mér vel á, reyni að mæta.

En í sambandi við planið hjá Esso Lækjargötu.. það er búið að grafa allt í tætlur þarna vegna einhverrra gatnaframkvæmda. OG þeim er hvergi nærri lokið. Svo það er ekkert pláss á planinu til einhvers hittings. Trúið mér.. ég vinn þarna :cry:

Svo að ég mæli með að þið hittist frekar á einhverju öðru plani. T.d. uppi á "Stöð" á Reykjavíkurvegi. (Þar sem Esso, Dekkjaverkstæðið og Shell eru, ásamt Löðri)

Author:  Gunni [ Fri 02. Jul 2004 15:50 ]
Post subject: 

Twincam wrote:
þetta lýst mér vel á, reyni að mæta.

En í sambandi við planið hjá Esso Lækjargötu.. það er búið að grafa allt í tætlur þarna vegna einhverrra gatnaframkvæmda. OG þeim er hvergi nærri lokið. Svo það er ekkert pláss á planinu til einhvers hittings. Trúið mér.. ég vinn þarna :cry:

Svo að ég mæli með að þið hittist frekar á einhverju öðru plani. T.d. uppi á "Stöð" á Reykjavíkurvegi. (Þar sem Esso, Dekkjaverkstæðið og Shell eru, ásamt Löðri)


Roger that :)

Takk fyrir ábendinguna!

Author:  joipalli [ Sat 03. Jul 2004 05:53 ]
Post subject: 

Er verðið í Go-kartið meðlimaverð eða almennt :oops:

Author:  rutur325i [ Sat 03. Jul 2004 13:52 ]
Post subject: 

ég kemst ekki.... ég hélt að þetta ætti að vera 10 júli.

ég verð víst að skila bjórbikarnum :cry:

Author:  Svezel [ Sat 03. Jul 2004 18:55 ]
Post subject: 

Líst vel á þetta og mæti kolklikkaður að vanda :king:

Author:  ///MR HUNG [ Sat 03. Jul 2004 20:31 ]
Post subject: 

ÆI Djöfull að missa af þessu ,Verð þá bara að láta ódýra bjórinn og go cartana á spáni duga í staðinn 8)

Author:  Raggi M5 [ Mon 05. Jul 2004 12:13 ]
Post subject: 

Þetta verður bara fjör!!!!! Vonandi verður rigning í Go-Kartinu :twisted:

Author:  Alpina [ Mon 05. Jul 2004 18:13 ]
Post subject: 

fart wrote:
Verð á erlendi.


SAMA ,,,,,,,,hér

Page 1 of 6 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/