Page 1 of 1

BMWkaftur á Bíladögum 2012

PostPosted: Mon 04. Jun 2012 21:52
by Aron Andrew
Sælir félagar,

Núna er farið að styttast í bíladaga og við ætlum ekki að skíta annað árið í röð!

Hérna er dagskrá BMWkrafts á bíladögum

Fimmtudagur 14. júní
Burn Out kl. 21:00

Föstudagur 15. júní
19:00 Samkoma Á Byko planinu þarsem komið er inn í bæinn.
20:30 Drift

Laugardagur 16. Júní
Götuspyrnan (hef ekki fundið tímasetningu ennþá)
19:00 Kraftsgrillið í Kjarnaskógi. Krafturinn skaffar kjöt og meððí en þið komið með drykki(gos, bjór, brennivín, þú ræður)

Sunnudagur 17. Júní
Bílasýningin

Endilega nota þennan þráð til að reyna að smala saman í hópkeyrslu norður, bjóða í partý, koma með hugmyndir af uppákomum eða bara hvað sem er.

Einnig ef þið norðanmenn getið bent okkur á nýjann stað undir grillið þá væri það vel þegið!

kv. Skemmtinefndin

Re: BMWkaftur á Bíladögum 2012

PostPosted: Tue 05. Jun 2012 04:26
by Danni
Like!

Re: BMWkaftur á Bíladögum 2012

PostPosted: Tue 12. Jun 2012 20:46
by gunnar
Þess má geta að boðið verður upp á frítt Coke Zero og Burn Blue Refresh orkudrykk i grillinu i boði Vífilfells. Þannig menn þurfa ekki að taka slíkt með sér (þeas gos)

Re: BMWkaftur á Bíladögum 2012

PostPosted: Wed 13. Jun 2012 12:58
by Erica
er ekkert búið að ákveða hvar samkoman verður á föstudeginum?

Re: BMWkaftur á Bíladögum 2012

PostPosted: Wed 13. Jun 2012 14:51
by MR.BOOM
Ég er nú ekki viss um að bílar komist hingað yfir höfuð......Menn hér eru að vígbúast með öllum tiltækum ráðum...

Re: BMWkaftur á Bíladögum 2012

PostPosted: Wed 13. Jun 2012 15:55
by Jón Ragnar
Erica wrote:er ekkert búið að ákveða hvar samkoman verður á föstudeginum?



Komum með það í kvöld!

Stay tuned

Re: BMWkaftur á Bíladögum 2012

PostPosted: Wed 13. Jun 2012 21:30
by Aron Andrew
Samkoman verður á Byko planinu kl 19:00 á föstudagskvöldinu