Page 1 of 10

Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011 Myndbandið bls10

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 11:50
by Jón Ragnar
Þá er komið að því strákar og stelpur!

Árshátíð BMWKrafts 2011 verður haldin
laugardaginn 5. Nóvember í Mjóddini (Gengið inn hliðina á Subway) kl 19:05



Það verður að sjálfsögðu hlaðborð eins og undanfarin ár.

Boðið verður uppá tryllta kraftsbollu eins og síðustu ár og við mælum með að menn kippi með sér nokkrum köldum til að drekka eftir matinn(ekki skilyrði samt) :wink:

Gos og snakk verður á borðum.

Vil hvetja alla til að mæta, meðlimi og non meðlimi, konur og kalla
:D

Kraftsvideoið verður á sínum stað.

Endilega takið þátt í árshátíðarkosningunni:
http://www.bmwkraftur.is/kosningar2011/


Það verða líka veitt verðlaun fyrir sigurvegara úr árshátíðarkosningunni.

Matseðill kemur seinna en það verður Múlakaffi sem græjar matinn ofan í okkur


Verð fyrir meðlimi er kr. 4.000.- (sama verð gildir fyrir maka)
Verð fyrir ekki-limi er kr. 5.000.-


Það er nauðsynlegt að þeir sem ætla sér að mæta staðfesti komu sína á vallifudd@gmail.com . Seinasti séns til að skrá sig er á miðvikudagurinn 2 Nóvember, þannig að allir að skrá sig og borga sem fyrst

Best er að þegar þú hefur staðfest komu þína (og maka ef við á), að skella sér inná heimabankann og millifæra inná:
reikning 0322-26-2244
kennitala 510304-3730


Munið að láta kennitölu eða nafn greiðanda fylgja með.

Þeir sem að hafa mætt á Árshátíðir síðustu ára vita að þetta er alltaf alveg ótrúlega gaman. Góður félagskapur, góður matur og gott að drekka. Ég vona að sem flestir láti sjá sig!! :) :clap: \:D/

kveðja,

Skemmtinefnd BMWKrafts

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 13:38
by Danni
Ég kem! Mæting um 7 leitið?

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 14:56
by Mazi!
Mæti :D!!!

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 15:36
by Axel Jóhann
Algjörlega mættur.

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 15:42
by kristjan535
ætla að mætta hef aldrei komið á þetta áður

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 15:47
by ValliFudd
Strax byrjaður að byrgja mig upp af bjór! :mrgreen:
(gengur samt hægt, er alltaf svo helvíti þyrstur)

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 15:47
by Solid
Ég mæti, hvar verður þetta? Aftur í árbænum?

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 15:48
by ValliFudd
Solid wrote:Ég mæti, hvar verður þetta? Aftur í árbænum?

Sjá línu 3 í fyrsta pósti :alien:

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 15:50
by Axel Jóhann
Solid wrote:Ég mæti, hvar verður þetta? Aftur í árbænum?



Þetta er miðsvæðis fyrir okkur, í mjóddinni! :D

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 15:53
by Jón Ragnar
Labbifæri frá Axeli þar sem fyrirparty verður :lol:

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 17:16
by oddur11
vinna til 8 á hentugum stað til að redda mér bjór :D þið munið svo eftir 10% afslætinum sem meðlimir fá á dubliner ;)

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 17:47
by SteiniDJ
Sweet, reikna fastlega með því að mæta!

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 18:28
by eiddz
Mættur !

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 19:27
by Brooke`
John Rogers wrote:Labbifæri frá Axeli þar sem fyrirparty verður :lol:


\:D/ :lol:

Re: Árshátíð BMWKrafts 5 Nóvember 2011

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 19:43
by tinni77
Ég er limur :mrgreen:

Mæti