bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

"Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=43175
Page 1 of 4

Author:  arnibjorn [ Mon 22. Feb 2010 20:47 ]
Post subject:  "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Sælir strákar,

Næsta samkoma verður með aðeins öðruvísi sniði.

Við hittumst í kuldanum hjá Hagkaup í holtagörðum kl. 20:30 og tökum svo hóprúnt um 21:00 uppí Rauðhellu 10.

Þetta er skúrinn sem ég, Andrew, Axel Jóhann og Siggi turbocrew erum að leigja og við ætlum að bjóða ykkur í heimsókn.

Þar verður til sýnis 3 on-going project. E30 turbo, Skyline R33 turbo og E36 325i compact.

Jafnvel að krafturinn splæsi í prinspóló á liðið, aldrei að vita?? :D :D (Ég fæ mér skyr bara)

kv. Árni Björn

Author:  Einarsss [ Mon 22. Feb 2010 20:48 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Ef það verður þurrt þá mæti ég klárlega :D

Author:  JohnnyBanana [ Mon 22. Feb 2010 22:11 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

mæti á mína fyrstu samkomu ef ég verð ekki í bullandi vinnu :thup:

Author:  Aron Andrew [ Mon 22. Feb 2010 23:55 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Við treystum á að enginn stingi verkfærunum okkar í vasann :lol:

Author:  Ingvarinn [ Mon 22. Feb 2010 23:58 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Aron Andrew wrote:
Við treystum á að enginn stingi verkfærunum okkar í vasann :lol:

Það væri nú bara já ég eiginlega þori arla að nefna þau orð á opnu spjalli þannig að við skulum kalla það þvílíkan dónaskap

Author:  Aron Andrew [ Tue 23. Feb 2010 00:00 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Ingvarinn wrote:
Aron Andrew wrote:
Við treystum á að enginn stingi verkfærunum okkar í vasann :lol:

Það væri nú bara já ég eiginlega þori arla að nefna þau orð á opnu spjalli þannig að við skulum kalla það þvílíkan dónaskap


Það hurfu vinningar uppá tugi þúsunda á árshátíðinni þannig að allur er varinn góður...

Author:  srr [ Tue 23. Feb 2010 00:05 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Ég mæti á E28 535i :thup:

Author:  Ingvarinn [ Tue 23. Feb 2010 00:24 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Aron Andrew wrote:
Ingvarinn wrote:
Aron Andrew wrote:
Við treystum á að enginn stingi verkfærunum okkar í vasann :lol:

Það væri nú bara já ég eiginlega þori arla að nefna þau orð á opnu spjalli þannig að við skulum kalla það þvílíkan dónaskap


Það hurfu vinningar uppá tugi þúsunda á árshátíðinni þannig að allur er varinn góður...

Já rétt er það að allur er varinn góður en þegar það er verið að bjóða fólki í heimsókn að þá er þetta ekkert annað en aumingjaskapur að vera að stela af gestgjafanum en margir kunna ekki að halda höndunum að sér :evil: :evil: :evil: :evil:
En ég ætla að reyna að koma og ef það tekst þá mæti ég með Cameruna og næ vonandi einhverjum skemmtilegum og góðum myndum

Author:  Alpina [ Tue 23. Feb 2010 08:00 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Verður ÖL og sápu konur :drool:

Author:  Zed III [ Tue 23. Feb 2010 09:46 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

humm,

Kannski ætti maður að mæta á e39 og fá dóm á nýju ///M innréttinguna sem er komin í.

Author:  gulli [ Tue 23. Feb 2010 13:23 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Verðuru með numera-rammana þarna árni???
Og er ekki í lagi þó maður mæti beint á rauðhelluna? :lol:

Author:  arnibjorn [ Tue 23. Feb 2010 13:24 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

gulli wrote:
Verðuru með numera-rammana þarna árni???
Og er ekki í lagi þó maður mæti beint á rauðhelluna? :lol:

Já það verða númeraplöturammar á svæðinu og jú ekkert mál þó þú mætir beint í skúrinn :wink:

Author:  agustingig [ Tue 23. Feb 2010 15:20 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Er nóg af stæðum þarna hjá ykkur? :lol:

Stefni á að mæta,, :santa:

Author:  SteiniDJ [ Tue 23. Feb 2010 18:33 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Hlakka til að sjá skúrinn hjá ykkur og hvernig aðstaðan er! :)

Author:  Steini B [ Tue 23. Feb 2010 21:40 ]
Post subject:  Re: "Skúra" Samkoma 28. febrúar kl. 20:30

Væri gaman að ná að mæta á þessa samkomu, en ég stórlega efast um að ég nái því...

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/