bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Árshátíð BMWkrafts 2009 - Allir að lesa bls. 12!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=40290
Page 1 of 19

Author:  arnibjorn [ Mon 05. Oct 2009 09:41 ]
Post subject:  Árshátíð BMWkrafts 2009 - Allir að lesa bls. 12!

Þá er komið að því strákar og stelpur!

Árshátíð BMWKrafts 2009 verður haldin
laugardaginn 17. október í Sjálfstæðissalnum á Seltjarnarnesi, austurströnd 5, kl 19:05



Það verður að sjálfsögðu hlaðborð eins og undanfarin ár.

Boðið verður uppá tryllta kraftsbollu eins og síðustu ár og við mælum með að menn kippi með sér nokkrum köldum til að drekka eftir matinn(ekki skilyrði samt) :wink:

Gos og snakk verður á borðum.

Vil hvetja alla til að mæta, meðlimi og non meðlimi, konur og kalla
:D

Jæja þá er matseðillinn tilbúinn! Ég verð bara svangur við að skrifa þetta!! :)


Forréttir(kalt):
Humar- hörpuskelssalat með capers og rauðlauk
Smálúðupaté á pasta- rækjusalati með sólþurrkuðum tómötum
Reyklaxakonfekt með sítrónusósu
Dillgrafinn lax með sinnepssósu
Roastbeef og suðrænt kartöflusalat
Hamborgarahryggur með eplasalati

Aðalréttir:
Innbakað lambafillé með rauðvínssósu
Appelsínugljáð kalkúnabringa

Eftirréttur:
Volgur “súkkulaðidraumur” með ganache fyllingu og vanillurjóma

Annað meðlæti:
Steiktar kartöflur, blandað ferskt soðið grænmeti, brauð og smjör



Þetta er ný veisluþjónusta, ekki sú sem við notuðum síðast en ég held að þetta verði geðveikt!

Kraftsvideoið verður á sínum stað.

Smá trailer fyrir Kraftsvideo'ið :D

http://www.youtube.com/watch?v=2BhGVyQQtDI

Það verða líka veitt verðlaun fyrir sigurvegara úr árshátíðarkönnuninni sem verður sett í gang á næstu dögum

Leynilegur skemmtikraftur mætir á svæðið til að halda uppi stuðinu í byrjun kvölds


Verð fyrir meðlimi er kr. 3.000.- (sama verð gildir fyrir maka)
Verð fyrir ekki-limi er kr. 4.000.-
Sama kreppuverð og var síðast :wink:


Það er nauðsynlegt að þeir sem ætla sér að mæta staðfesti komu sína á arnib11 @ gmail.com. Seinasti séns til að skrá sig er á miðvikudagurinn 14. oktober, þannig að allir að skrá sig og borga sem fyrst

Best er að þegar þú hefur staðfest komu þína (og maka ef við á), að skella sér inná heimabankann og millifæra inná:
reikning 0322-26-2244
kennitala 510304-3730


Munið að láta kennitölu eða nafn greiðanda fylgja með.

Þeir sem að hafa mætt á Árshátíðir síðustu ára vita að þetta er alltaf alveg ótrúlega gaman. Góður félagskapur, góður matur og gott að drekka. Ég vona að sem flestir láti sjá sig!! :) :clap: \:D/

kveðja,

Skemmtinefnd BMWKrafts

Author:  Hannsi [ Mon 05. Oct 2009 14:06 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

Þetta er s.s á sama stað og í fyrra?

Author:  arnibjorn [ Mon 05. Oct 2009 14:11 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

Hannsi wrote:
Þetta er s.s á sama stað og í fyrra?

Já.

Author:  arnibjorn [ Mon 05. Oct 2009 19:00 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

Strax alveg hellingur búin að skrá sig!!

Þetta verður svaka stuð :D

Author:  ingo_GT [ Mon 05. Oct 2009 20:08 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

Spurning hvort maður láti sjá þig :)

En hverni veit ég hvort ég sje meðlimur eða ekki mann að ég skráði mig í einhvað hérna dæmi :lol:

Author:  arnibjorn [ Mon 05. Oct 2009 20:12 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

ingo_GT wrote:
Spurning hvort maður láti sjá þig :)

En hverni veit ég hvort ég sje meðlimur eða ekki mann að ég skráði mig í einhvað hérna dæmi :lol:

Það stendur fyrir neðan nafnið þitt "Meðlimur" ef þú ert meðlimur :wink:

Author:  aronjarl [ Mon 05. Oct 2009 21:14 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

usss þetta er virkilega góð skemmtun.!!


fór fyrst í fyrra... haha

sé svolítið eftir að hafa ekki farið mikið oftar.!

Author:  Dóri- [ Mon 05. Oct 2009 23:46 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

hugsa að ég mæti :)

Author:  Steini B [ Tue 06. Oct 2009 00:02 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

Langar að mæta, en er að spá í hvort ég eigi að taka sumarbústað framyfir... :?

Author:  rockstone [ Tue 06. Oct 2009 00:54 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

Verð fyrir meðlimi er kr. 3.000.- (sama verð gildir fyrir maka)
Verð fyrir ekki-limi er kr. 4.000.-

semsagt 3000 fyrir karla og 4000 fyrir konur?







SmáGrín :lol:

Author:  ValliFudd [ Tue 06. Oct 2009 10:02 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

Steini B wrote:
Langar að mæta, en er að spá í hvort ég eigi að taka sumarbústað framyfir... :?

:shock:

Author:  Ingsie [ Tue 06. Oct 2009 10:44 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

Steini B wrote:
Langar að mæta, en er að spá í hvort ég eigi að taka sumarbústað framyfir... :?

Ekki vera kona! Mættu ;)

Author:  arnibjorn [ Tue 06. Oct 2009 11:20 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

Ingsie wrote:
Steini B wrote:
Langar að mæta, en er að spá í hvort ég eigi að taka sumarbústað framyfir... :?

Ekki vera kona! Mættu ;)

Á ég ekki að skrá þig Inga? :D

Allir að drífa sig í að skrá sig.. því lengur sem þið bíðið því minni pening eigið þið :lol:

Author:  Ingsie [ Tue 06. Oct 2009 11:59 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

arnibjorn wrote:
Ingsie wrote:
Steini B wrote:
Langar að mæta, en er að spá í hvort ég eigi að taka sumarbústað framyfir... :?

Ekki vera kona! Mættu ;)

Á ég ekki að skrá þig Inga? :D

Allir að drífa sig í að skrá sig.. því lengur sem þið bíðið því minni pening eigið þið :lol:

Heyrðu búnað borga, bara eftir að senda þér mail :P

Author:  Axel Jóhann [ Tue 06. Oct 2009 12:38 ]
Post subject:  Re: Árshátíð BMWkrafts 2009

Búnað borga :D þannig ég verð að mæta!

Page 1 of 19 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/