Page 1 of 13

Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 10:16
by arnibjorn
Sælir meðlimir,

Núna er komið að síðustu samkomunni okkar á sumarplaninu.

Þessi samkoma verður þess vegna aðeins öðruvísi :)

Svona er planið:

Mæting klukkan 16:00 hjá bílaplaninu við gamla B&L.

Eftir að flestir eru mættir þá verður haldið af stað í hóprúnt í Hvalfjörðinn. Keyrum um fjörðinn og skemmtum okkur.

Síðan ætlum við að finna góðan stað til að stoppa á og ef til vill taka myndir ef einhverjir ljósmyndarar ákveða að láta sjá sig.

Krafturinn ætlar síðan að bjóða uppá slöngur og gos fyrir svanga kraftsmeðlimi. :D

Áætluð heimför er síðan um 20:00.

Ég ætla að henda inn könnun líka svo við vitum svona ca. hversu mikið af slöngum og gosi við þurfum að kaupa. Endilega svara könnuninni! :)

mbk
Skemmtinefndin

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 11:04
by Daníel
Koma svo, sláum almennilegan botn í sumarið!

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 11:07
by gunnar
Nennir einhver að taka mig með? Ég er BMW laus :bawl: :aww:

Áskil mér þó rétt að velja mér flottasta bílinn til að sitja í :drool: :lol:

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 11:13
by Daníel
gunnar wrote:Nennir einhver að taka mig með? Ég er BMW laus :bawl: :aww:

Áskil mér þó rétt að velja mér flottasta bílinn til að sitja í :drool: :lol:


Mátt koma með mér, en ég verð sármóðgaður ef þú velur svo annan bíl en minn! :mrgreen:

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 12:17
by Birgir Sig
þetta hljomar bara vel ég mæti:D

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 12:25
by Mazi!
ég mæti á Touring 8)

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 12:59
by Danni
Ég þarf að fara að sjóða saman hvernig ég get reddað fríi en ég á að vera á næturvakt 20-08 þennan dag og langar alveg þvílíkt mikið til að mæta! Þá á 540 offkors 8)

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 13:06
by Einarsss
Reikna fastlega með að ég mæti :)

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 13:19
by HPH
ég held bara að ég mæti í þetta skipti. Fyrsta skipti frá því á árshátíðinni.

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 15:25
by Húni
ég væri til í að mæta er samt ekki á ökuhæfum bimma spurning hvort maður reddi sér

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 16:53
by sh4rk
Ég hugsa að ég mæti á E23 annars bara á 740i

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 17:18
by SteiniDJ
Snilld, vonum bara að veðrið verði gott.

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 17:23
by hjolli
of sneemmaa.. næ kanski endanum=/

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 17:58
by tinni77
ég mæti, en það þarf eflaust einhver algóður BMW-eigandi að kippa mér með :twisted:

Re: Síðasta samkoma/hóprúntur sumarplansins sunnud. 23 ágúst

PostPosted: Mon 17. Aug 2009 18:22
by Alpina
Team Be mætir