Núna er komið að síðustu samkomunni okkar á sumarplaninu.
Þessi samkoma verður þess vegna aðeins öðruvísi
Svona er planið:
Mæting klukkan 16:00 hjá bílaplaninu við gamla B&L.
Eftir að flestir eru mættir þá verður haldið af stað í hóprúnt í Hvalfjörðinn. Keyrum um fjörðinn og skemmtum okkur.
Síðan ætlum við að finna góðan stað til að stoppa á og ef til vill taka myndir ef einhverjir ljósmyndarar ákveða að láta sjá sig.
Krafturinn ætlar síðan að bjóða uppá slöngur og gos fyrir svanga kraftsmeðlimi.
Áætluð heimför er síðan um 20:00.
Ég ætla að henda inn könnun líka svo við vitum svona ca. hversu mikið af slöngum og gosi við þurfum að kaupa. Endilega svara könnuninni!
mbk
Skemmtinefndin





