Ekki nema hálft ár í bíladaga og núna þurfa allir að drífa sig að græja bílana og redda gistingu ef menn nenna ekki að gista í gamla góða tjaldinu
Í ár þá er 17. júní á miðvikudegi þannig að þetta verður frá miðv.-sunnud. væntanlega.
Ég ætla að stela uppsetningunni hans Skúla úr 2008 þræðinum
Langar til að forvitnast hverjir eru staðfastir á að mæta, hvernig menn ætla að gista o.s.frv.
Svona er dagskráin samkvæmt BA
17. júní
Bílasýning Akureyri BA Þjóðhátíðarsýning
18. júní
Burn-Out Akureyri BA Íslandsmeistaramót
19. júní
Drift Akureyri BA Íslandsmeistaramót
20. júní
Götuspyrna Akureyri BA Íslandsmeistaramót
Fínt ef menn uppfærðu listann bara.....
# - notendanafn - gisting - hvenær brottför - á hvaða bíl - þáttaka í einhverri keppni?
1. arnibjorn- íbúð í downtown Ak- þriðjudag 16. júní - BMW E30 335 - driftið
Ps. Ég var að bóka íbúðina mína áðan





