Jæja jæja.. loksins er stundinn runnin upp!!
Árshátíð BMWKrafst 2008 verður haldin
laugardaginn 1. nóvember í Sjálfstæðissalnum á Seltjarnarnesi, austurströnd 5, kl 19:05
Það verður að sjálfsögðu hlaðborð eins og undanfarin ár.
Boðið verður uppá tryllta kraftsbollu eins og síðustu ár og við mælum með að menn kippi með sér nokkrum köldum til að drekka eftir matinn(
ekki skilyrði samt)
Gos og snakk verður á borðum.
Vil hvetja alla til að mæta, meðlimi og non meðlimi, konur og kalla :D
Jæja, þá er það gourmet matseðillinn
Forréttir
Grafinn lax, pipargrafið nautafille, skelfisksalat í kókos og lime, Hreindýrapaté
Aðalréttir
Villikryddað lambalæri, reyktur grísakambur og hunangsgljáðar kalkúnabringur
Eftirréttir
Súkkulaðimús, kókos-passion terta, ferskt ávaxtasalat, rjómi og sósur
Þrusugott kraftsvideo verður sýnt, allar helstu uppákomur bmwkrafts þetta árið koma fram þar!
Það verða líka veitt verðlaun fyrir sigurvegara úr árshátíðarkönnuninni sem verður sett í gang á næstu dögum
Verð fyrir meðlimi er kr. 3.000.- (sama verð gildir fyrir maka)
Verð fyrir ekki-limi er kr. 4.000.-
Þetta er lækkun frá síðasta ári.. krafturinn reynir auðvitað að koma til móts við kreppunni
Það er nauðsynlegt að þeir sem ætla sér að mæta staðfesti komu sína á arnib11 @ gmail.com. Seinasti séns til að skrá sig er á mánudaginn 27. oktober, þannig að allir að skrá sig og borga sem fyrst
Best er að þegar þú hefur staðfest komu þína (og maka ef við á), að skella sér inná heimabankann og millifæra inná:
reikning 0322-26-2244
kennitala 510304-3730
Munið að láta kennitölu eða nafn greiðanda fylgja með.
Þetta verður gjörsamlega bilað skemmtilegt kvöld og ég hlakka til að hitta alla og vona að sem flestir sjái sér fært að mæta
kveðja,
Skemmtinefnd BMWKrafts