bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Útilega BMWkrafts laugardaginn 26. júlí
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=30709
Page 1 of 8

Author:  arnibjorn [ Sun 13. Jul 2008 22:59 ]
Post subject:  Útilega BMWkrafts laugardaginn 26. júlí

Já heilir og sælir piltar og stúlkur

Núna er komið að því að fara í okkar núna árlegu útilegu :D

Síðasta útilega heppnaðist nokkuð vel en í þetta skiptið viljum við fá ennþá fleiri! Því fleiri því skemmtilegra.

Þetta verður mjög svipað og síðast. Sami staður og sama plan.

Staðurinn heitir Hvammsvík og er í hvalfirðinum á mjög fínum stað. www.hvammsvik.is


Við ætlum að hittast kl. 13:00 hjá KFC í mosfellsbæ og þaðan tökum við hóprúnt uppí Hvalfjörð. Við munum síðan keyra Hvalfjörðin og skemmta okkur pínu og við stoppum eflaust á einhverjum góðum stað og tökum gott photoshoot. :)

Það verða allir að koma með sinn eigin mat og drykki(lesist bjór) en krafturinn skaffar grillið og góðu stemninguna.

Menn þurfa auðvitað ekki að gista en að sjálfsögðu ætlast ég til þess að menn grípi með sér tjaldið/tjaldvagninn/húsbílinn/einbýlishúsið og gisti með okkur nóttina, það er LANG skemmtilegast!

Hvet síðan alla til að taka með sér tjaldstóla, hundleiðinlegt að geta ekki fengið sér sæti meðan maður sötrar á bjórnum/pepsi maxinu :wink:


Allir sem ætla að gista þurfa að senda mér mail á arnib11 @ gmail.com af því að ég þarf helst að vita ca. töluna á þeim sem ætla að gista.

Ég vona að ég sé ekki að gleyma neinu, ef eitthvað er óljóst ekki hika við að spurja bara :)

Kv. Skemmtinefndin

Author:  Mazi! [ Sun 13. Jul 2008 23:08 ]
Post subject: 

Er eitthvað aldursakamark ?

Author:  arnibjorn [ Sun 13. Jul 2008 23:14 ]
Post subject: 

bimma_frík wrote:
Er eitthvað aldursakamark ?


Það var ekkert aldurstakmark á þessum stað síðast, ég vona að það sé ekki búið að breytast.

Ég verð í sambandi við staðinn í vikunni :)

Annars segjum við bara að þú sért sonur einhvers... það er svo mikið af gömlum köllum í kraftinum :lol:

Author:  gstuning [ Sun 13. Jul 2008 23:19 ]
Post subject: 

Mig langar að ná að klára rauða og mæta á honum í þetta :)

Author:  Jón Ragnar [ Sun 13. Jul 2008 23:25 ]
Post subject: 

ég kem alveg pottþétt.
vill ekki missa af þessu eins og síðast

Author:  Lindemann [ Sun 13. Jul 2008 23:27 ]
Post subject: 

ætli maður verði ekki að reyna að mæta.....fátt betra en fyllerí í sveitinni 8)

Author:  IceDev [ Sun 13. Jul 2008 23:27 ]
Post subject: 

Hljómar vel, kannski að maður mæti á family-vagninum :lol:

Author:  Cavalier [ Sun 13. Jul 2008 23:30 ]
Post subject: 

AWW hell yeah .... :D

Get ekki beðið 8)

Author:  Turbo- [ Sun 13. Jul 2008 23:31 ]
Post subject: 

ég er til í þetta ef maður er ekki úti

Author:  arnibjorn [ Sun 13. Jul 2008 23:32 ]
Post subject: 

Þetta verður sko alveg geðveikt :D :D

Allir að skrá sig bara sem fyrst, ég þarf að láta staðinn vita hversu margir ætla að gista sem fyrst.

Author:  Dóri- [ Sun 13. Jul 2008 23:57 ]
Post subject: 

er ekki boðið upp á einhvernskonar gistingu á þessu svæði ? Ég hata tjöld :lol:

Author:  arnibjorn [ Sun 13. Jul 2008 23:59 ]
Post subject: 

Dóri- wrote:
er ekki boðið upp á einhvernskonar gistingu á þessu svæði ? Ég hata tjöld :lol:


Nei.. bara gamla góða tjaldið :wink:

Svo er auðvitað hægt að sofa í bílnum bara :lol:

Author:  Ingsie [ Mon 14. Jul 2008 00:31 ]
Post subject: 

UJE ég mæti! Hlakka baaaaara til 8)

Author:  ValliFudd [ Mon 14. Jul 2008 00:44 ]
Post subject: 

Kvartmíla þennan dag svo ég kem seinnipartinn 8)

Author:  birkire [ Mon 14. Jul 2008 00:57 ]
Post subject: 

Útileiga.. tíhí :lol:

Gæti verið gaman að kíkja á OZinum

Page 1 of 8 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/