bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Búið að ákveða sameiginlega samkomu PORSCHE, BENZ & BMW!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=2776
Page 1 of 4

Author:  bebecar [ Tue 23. Sep 2003 08:42 ]
Post subject:  Búið að ákveða sameiginlega samkomu PORSCHE, BENZ & BMW!

Porsche menn eru klárir í slaginn - nú er bara að vona að sem flestir nái að mæta á samkomu sem mun líklega verða sú hestaflamesta og dýrasta hingað til (verst að M5 bílarnir eru næstum allir komnir norður og ólíklegt að þeir nái að mæta :wink: )

"Reyndar er meðlimum Porsche klúbbsins boðið að fara í annan hópakstur þriðjudaginn 30. sept. með öðrum þýskum bílum. Þar ætla að hittast saman safn af þýskum gæðingum BMW, Bens og Porsche. Ákveðið hefur verið að hittast á neðra planinu við Perluna klukkan 20.00."

Kveðja,
Beggi & Dóri.

Author:  bjahja [ Tue 23. Sep 2003 12:29 ]
Post subject: 

Já og menn MEIGA EKKI LÁTA KULDA STOPPA SIG Í AÐ KOMA!!!!!

Author:  Stefan325i [ Tue 23. Sep 2003 12:36 ]
Post subject: 

má ég koma á " nýja " bílnum mínum??

hann er ekki BMW, Bens eða Porsche en samt þýskur ???????

vinsamlegast látið mig vita :)

Author:  oskard [ Tue 23. Sep 2003 12:38 ]
Post subject: 

er hann sætur ?

Author:  bjahja [ Tue 23. Sep 2003 12:40 ]
Post subject: 

Þú verður að koma á túbbónum maður, láttu bara einhvern annan koma á Bjöllunni(?????)

Author:  oskard [ Tue 23. Sep 2003 12:44 ]
Post subject: 

vantar ekki enþá hedd á þann fák ? :roll:

Author:  bebecar [ Tue 23. Sep 2003 13:11 ]
Post subject: 

Auðvitað mega allir koma! Stofnar bara sér röð fyrir VW GTi :wink:

Author:  Logi [ Tue 23. Sep 2003 13:52 ]
Post subject: 

Ég mæti, ekki spurning!

Author:  bebecar [ Tue 23. Sep 2003 13:55 ]
Post subject: 

Sjúkk... Einn M5 allavega!

Við verðum að mæta með nokkur þúsund hestöfl - það er alveg ljóst!

Author:  Haffi [ Tue 23. Sep 2003 14:00 ]
Post subject: 

Já látið ei kuldabola bíta ykkur. Þið búið á íslandi og hljótið því að eiga ÚLPUR eða SNJÓGALLA! Klæða sig vel svo að það slái ekki að ykkur lömbin mín.

Author:  Kull [ Tue 23. Sep 2003 16:18 ]
Post subject: 

Iss piss, sameiginleg samkoma en tímasetning ákveðin einhliða af öðrum klúbbi. Ég mæti ekki, enda útí Þýskalandi :P

Author:  bebecar [ Tue 23. Sep 2003 22:21 ]
Post subject: 

Getur bíllinn þinn ekki mætt? :lol:

Author:  kiddim5/mpower [ Tue 23. Sep 2003 23:32 ]
Post subject: 

Ég reyni að mæta þá verður allavegana einn M5, ef ég kem þá vonast ég til að sjá sem flesta .

Author:  Dr. E31 [ Wed 24. Sep 2003 01:38 ]
Post subject: 

Ég er mættur. :D

Author:  Haffi [ Wed 24. Sep 2003 01:42 ]
Post subject: 

ég mæti á hondu!!! .... eða hvað ? :?

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/