Page 1 of 10

Kraftsdagur á Akstursbrautinni 2.0 > Laugardaginn 15. sep

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 07:59
by arnibjorn
Erum búnir að negla niður dagsetningu!!

Þetta verður næstu helgi. Semsagt laugardaginn 15. september!

Eins og er, þá er spáin fín... Þurrt en kalt! Þannig að við mætum bara vel klæddir :D



BMWKraftur hefur tekið Akstursbrautina á leigu fyrir félagsmenn sína núna í annað skiptið í sumar og í þeim
tilgangi að halda BMW-Krafts ONLY dag á brautinni.



Laugardaginn 8. september verður BMWKrafts-leikdagur á Rallykross brautinni.

Aðeins gildir meðlimir BMWKrafts fá að aka á brautinni þennan dag.
Við hvetjum alla til að koma og horfa á.

Brautin opnar kl 10 og verður opin fram eftir degi



Mér finnst líklegt að þeir sem mæta fái að gæða sér á prins og kók.... en athugið-----> AÐEINS þeir sem mæta fá prins og kók! :lol:

Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.
Vinsamlegast farið varlega á malarveginum.


Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.


Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.


Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskírteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 1000 kr.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og við förum eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í Árna / Aron í síma 616-2694 / 869-6722

Ásamt tryggingaviðauka verða allir að prenta út eftirfarandi og skrifa undir
(og láta forráðamenn skrifa undir ef svo ber undir). Gerið copy / paste í word


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri á vegum BMWkrafts áhugamannafélags,
sem fram fer þann. 08 / 09 / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 08:00
by Hannsi
mæti

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 08:21
by Einarsss
Mætti :!:

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 08:42
by arnibjorn
einarsss wrote:Mætti :!:

Vá... dagurinn strax bara búinn hjá þér?? :lol:

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 08:43
by Einarsss
arnibjorn wrote:
einarsss wrote:Mætti :!:

Vá... dagurinn strax bara búinn hjá þér?? :lol:


errheemm ... ný vaknaður og mættur í vinnuna :lol:


EDIT: Mæti :wink:

PostPosted: Wed 29. Aug 2007 22:27
by HPH
vona að ég verði búinn að Redda kúplingu og gormum fyrir þennan dag.

PostPosted: Wed 29. Aug 2007 22:30
by Elnino
hmm... kannski að maður kíki

PostPosted: Thu 30. Aug 2007 02:22
by IceDev
Hvar borgar maður?

PostPosted: Thu 30. Aug 2007 07:41
by arnibjorn
IceDev wrote:Hvar borgar maður?

Á staðnum :wink:

PostPosted: Thu 30. Aug 2007 13:36
by IceDev
Með real life peningum? Er ekki posi?

PostPosted: Thu 30. Aug 2007 13:38
by arnibjorn
IceDev wrote:Með real life peningum? Er ekki posi?

Nei bara hægt að borga með Monopoly peningum

Image

En jú.... hefði átt að láta það fylgja eins og síðast að það er bara hægt að borga með cash! :)

Aðeins hægt að borga með peningum, ekki korti.

Þeir sem ætla að keyra verða bara að taka út 1000kr þegar þeir taka bensín á bílinn!


8)

PostPosted: Thu 30. Aug 2007 13:39
by Einarsss
IceDev wrote:Með real life peningum? Er ekki posi?


of mikið vesen að fara með real life debet kortið þitt í real life hraðbanka á real life bensínstöðinni þar sem þú tekur real life bensín áður en þú mér í real life uppá braut?


there is no real life - there is only AFK :lol:

PostPosted: Thu 30. Aug 2007 13:39
by IceDev
Ég á ekki real life pin en jújú, ég fer í real life bensínstöð og tek real life pening yfir real life kortinu :P

PostPosted: Thu 30. Aug 2007 15:26
by Einarsss
bara keepin it real 8)

PostPosted: Thu 30. Aug 2007 16:16
by bjornvil
For real :?: