Jæja þá er loksins komið að því.
Í tilefni að 1 árs afmælis BMWKrafts 9. júlí sl. verður haldið bjórkvöld þann 8. ágúst!. Þetta verður með svipuðum hætti og síðast (fyrir ykkur sem mættu þá).
Partyið verður haldið á Glaumbar Föstudaginn 8. Ágúst og byrjar gleðin kl 20:30. Þar er risaskjár þar sem við getum horft á bílavídjó og annað slíkt.
Planið er að allir sem ætla að drekka bjór borgi 1500 kr. og þeir sem ekki ætla að drekka bjór borga 1000 kr. Það verður allt fljótandi í bjór (fyrir þennan 1500 kall), snakki ofl. Þeir sem borga fyrir bjór fá miða hjá okkur sem þeir sýna á barnum til að fá “frían bjór”. Eftir að kúturinn klárast verða tilboð á barnum.
Ef einhver hefur undir höndum vídjó sem gæti verið við hæfi að sýna þarna eru beðnir að hafa samband við Árna Bjé í s. 862-6862 eða e-mail
arnib@bmwkraftur.is
Þeir sem ætla að mæta VERÐA að borga fyrirfram. Það gera þeir með því að leggja pening inná reikn. 1150-05-409244 kt. 270582-7109. Þegar því er lokið skal senda e-mail á netfangið party@bmwkraftur.is og skrifa bara í topicið dagsetningu þegar borgað var, Fullt nafn, notandanafn, kennitölu og GSM símanúmer.
T.d. 150703 Jón Jónsson nonnijons 010101-9999 s. 899-9999
Við vonum að það mæti sem flestir (þetta er nú ágætis fyrirvari) því það var alveg endalaus rífandi stemming síðast!
Kveðja, Bjórnefndin
p.s. við hvetjum alla þá sem ætla að súpa öl að skilja bifreiðar eftir heima