Page 1 of 2

Samkoma á Akureyri um páskahelgina

PostPosted: Sun 01. Apr 2007 13:05
by Bjarkih
Sælir félagar

Nú er kominn tími til að þeir sem eru hér fyrir norðan hittist. Og þar sem það er löng helgi framundan þá er alveg upplagt að halda smá samkomu hérna og fara svo jafnvel og fá sér eitthvað að borða saman ef vilji er fyrir hendi. Þar sem menn eru oft á þvælingi yfir þessa helgi þá datt mér í hug að hafa 3 daga sem hægt er að velja á milli, ef enginn af þeim hentar þá bara látið þið vita, maður veit aldrei hvort hægt sé að breyta ennþá meira... Látið líka vita hvort þið viljið hittast á ÚA planinu, Glerártorgi eða bara inni í miðbæ.

PostPosted: Sun 01. Apr 2007 13:07
by mattiorn
klárlega kominn tími á samkomu!!

Svosem alveg sama hvenær hún er, en föstudagurinn er betri fyrir myndatöku :wink:

PostPosted: Mon 02. Apr 2007 22:16
by Ingsie
Gátu þið ekki haft samkomuna um þessa helgi :lol: Þá hefði ég mætt :lol:

PostPosted: Tue 03. Apr 2007 17:39
by jon mar
Fimmtudagurinn hentar mér betur. Föstudagurinn er allur frátekinn fyrir BMW viðgerðir og endurbætur.

PostPosted: Wed 04. Apr 2007 23:34
by Bjarkih
Að öllu óbreyttu þá held ég að það sé best að láta könnunina eins og hún stendur núna ráða. Það verður semsagt samkoma á föstudaginn kl. 15 og við skulum bara hittast á planinu við Glerártorg, sunnan meginn, svona til að vera í skjóli.

PostPosted: Thu 05. Apr 2007 09:59
by jon mar
verð ekki á svæðinu, né lulex, ásamt einum sunnanmanni (twincam).

Verðum utanbæjar að grauta í bmw-inum hans lulex, gera þetta keppnis.

PostPosted: Thu 05. Apr 2007 12:45
by mattiorn
og ég verð á Vopnafirði

partýýý

PostPosted: Thu 05. Apr 2007 13:28
by jon mar
eins til tveggja manna samkoma????





jeiiiiii

PostPosted: Thu 05. Apr 2007 14:43
by mattiorn
Sundlaugin á Vopnafirði er besti staðurinn sem ég hef komið á 8)

PostPosted: Fri 06. Apr 2007 18:54
by mattiorn
Varð eitthvað úr þessari samkomu?

Held að það sé best að þið sendið mér bara sms í 8698660 með nafni og þegar næsta samkoma verður ákveðin þá læt ég ykkur bara vita..

Svo líka gott að senda mér númer hjá öðrum BMW eigendum sem þið vitið um :wink:

PostPosted: Fri 06. Apr 2007 20:53
by Bjarkih
Nei, það varð ekkert úr þessu. Væri best að einhver einn tæki að sér að ákveða svona þannig að ef þú Matti ert tilbúinn í það þá væri það fínt.

PostPosted: Fri 06. Apr 2007 21:07
by mattiorn
Bjarkih wrote:Nei, það varð ekkert úr þessu. Væri best að einhver einn tæki að sér að ákveða svona þannig að ef þú Matti ert tilbúinn í það þá væri það fínt.


jebb, alveg klár í það, vil helst samt bara fá númerin ykkar í staðinn fyrir að þurfa að rúnta um kvöldið áður og setja miða á rúðuna á öllum BMW sem ég finn :lol:

PostPosted: Sat 07. Apr 2007 00:45
by Eiddi
átt að vera með númerið hjá mér matti :wink: annars er það 6620825 eyþór 8)

PostPosted: Sat 07. Apr 2007 12:54
by mattiorn
Eiddi wrote:átt að vera með númerið hjá mér matti :wink: annars er það 6620825 eyþór 8)


jebbs, klárt :wink:

PostPosted: Sat 07. Apr 2007 14:14
by jon mar
matti kann víst mitt númer. Var illa fljótur að læra það :lol: