Sælir félagar
Nú er kominn tími til að þeir sem eru hér fyrir norðan hittist. Og þar sem það er löng helgi framundan þá er alveg upplagt að halda smá samkomu hérna og fara svo jafnvel og fá sér eitthvað að borða saman ef vilji er fyrir hendi. Þar sem menn eru oft á þvælingi yfir þessa helgi þá datt mér í hug að hafa 3 daga sem hægt er að velja á milli, ef enginn af þeim hentar þá bara látið þið vita, maður veit aldrei hvort hægt sé að breyta ennþá meira... Látið líka vita hvort þið viljið hittast á ÚA planinu, Glerártorgi eða bara inni í miðbæ.
