bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Akureyri - bíladagar - BMWkraftsmenn - ferðasaga. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=1726 |
Page 1 of 5 |
Author: | saemi [ Mon 16. Jun 2003 01:19 ] |
Post subject: | Akureyri - bíladagar - BMWkraftsmenn - ferðasaga. |
Jæja félagar, þá er maður kominn í bæinn eftir norðurförina. Ég verð nú bara að segja að þetta var alveg fráááábær ferð, fyrir mig allavega. Það var lagt af stað frá Mosó klukkan 17:45. Það voru nú ekki svo margir, en orkuboltar og stuðfólk sannanlega þegar á reyndi. Þeir sem lögðu upp voru: 635csi - Sæmi 318i - Gunni + Halla 320i - Haffi + Co 323i - Bjarni Carisma - Árni + Salvör + Óskar Sunny - Úlfar Svo í Borgarnesi bættist hann Siggi á 732i við. Við þrumuðum til Akureyrar með viðeigandi pissustoppum og hamborgarastoppi í Staðarskála. Ferðin gekk nú ekki alveg áfallalaus þar sem bíllinn hans Sigga ákvað að hvíla sig yfir helgina í Húnaveri þar sem hann bilaði á leið upp brekkuna. Það er sennilega tölvuheilinn bilaður í honum greyinu (bílnum sko). En við létum það ekki á okkur fá og Siggi dreif sig bara með mér í bíl. Við Siggi höfðum nú misst af lestinni, þar sem Haffi fékk loksins að spretta úr spori. Bimmapabbi á sínum 635csi var búinn að halda aftur af lestinni alla leið úr bænum, svona til að viðhalda almenningsálitinu og lágmarka kostnað vegna hraðasekta (aðrir hefðu mátt taka sér það til fyrirmyndar, sérstaklega þessi á Golfinum sem krafts-meðlimir keyrðu 2svar fram úr á leiðinni í faðmlögum við laganna verði). En lestarstjórarnir nýju, þeir Haffi og Úlfar, tröðkuðu plastið í botn og aumingja Gunni mátti hafa sig allan við til að týnast ekki á leiðinni. Hann var alla leiðina að gíra "fastandfurios style" til að týnast ekki í brekkunum. Nú allir hittust svo á tjaldstæðinu á Akureyri rétt um 23. Þar voru fagnaðar fundir miklir og þjóðvegarykinu skolað niður með veitingum ýmisskonar. Skemmst er frá að segja að allir léku þar á alls oddi, hressarri en orð fá lýst. Á Akureyri sáust svo aðrar BMW-krafts hnetur. Ég er að gleyma sumum, og ég kann ekki nöfnin á sumum, vonandi verður mér fyrirgefið. En ég man nú eftir að hafa séð þarna allavega...: Raggi M5. Hann var þarna með okkur á svæðinu, og virtist vera búinn að taka meðlimi í sátt eftir fjaðrafok undanfarinna skrifa ![]() ![]() Nú Keflavíkurbræður, þeir Stebbi og Gunni GStuning (sem eru sko ekki bræður) mættu gallvaskir á tjaldstæðið. Þar var tttsssssshhhhhh-að og vvvvrrrrooooommm-að á bílunum út um allar trissur. Spjallað var í og hjá tjöldum félagsmanna um hestöfl og E-númer af miklum móð. Þau Árni, Salvör og Óskar buðu í partí í næst-stærsta tjaldinu hjá félagsmönnum þar sem glatt var á hjalla. Eftir mikinn þorsta hjá velflestum, og góðri viðleitni við að slökkva hann var svo skroppið niður í bæ. Þar var flóra norðurlands skoðuð og endað var á Kaffi Akureyri þar sem aðallega var rætt um stjórnmál og ástandið í heimsmálum í dag ![]() Eftir meiri mannlífskannanir á götum Agureyrar, var splæst í Tikktakk flatböku í lokin. Svo sá hann Bjarni auman á fólkinu og tók að sér að skutla hverjum einum og einasta aftur upp á tjaldstæði ![]() Við komuna á tjaldstæði / ruslahaug Akureyrar fóru svo sumir að tygja sig til svefns. Aðrir (lesist undirritaður og Siggi... voru nokkrir fleiri svona vitlausir annars?) sáu nú ekki mikin tilgang í því og héldu áfram atferlis-eftirfylgni á staðnum og reyndu að blanda geði við gesti staðarins. Nú daginn eftir var fólk allt saman stálslegið eftir góðan nætursvefn og hófsama drykkju. Byrjuðu sumir daginn á því að spóka sig í sundlaug bæjarins á meðan aðrir létu nægja að fá sér volgt kók í morgunmat og snúa bolnum við. En allir mættu nú til að fylgjast með götuspyrnunni, þar sem GS félagar héldu heiðri félagsmanna á lofti og Stefán tók silfur 6cyl flokksins heim. Gunni náði feiknagóðum tíma í tímatöku, en hvorugur þeirra átti þó séns í 321 hestafl M roadster kerrunnar sem allt vann í flokknum. Nýji eigandi 325i Lorenz bílsins, fjórði BMW keppandinn var svo orðinn feikna sprækur í lokin og sýndi hvað í bílnum býr. Mikil þreyta hafði gert vart við sig í fótum félagsmanna að þessu loknu og var haldið heim á leið (á tjaldstæðið). Þar var slegið upp sannkallaðri veislu þegar kokkar klúbbsins hristu fram úr erminni veitingar ýmisskonar sem eldaðar voru á hlóðum frábærra "instant-grilla". Misvel gekk þó að kveikja upp í grillunum þar sem það krefst töluverðrar lagni.... ![]() ![]() Gunni og Halla tóku það á sig (þeim að kenna, þau voru með stærsta tjaldið) að hýsa alla í skrafboði kvöldsins. Þar var hitað upp fyrir kvöldið, alveg þangað til allir voru kólnaðir aftur. Margir kíktu í heimsókn. Til að nefna fáa þá komu: Hlynur og frú, spjölluðu villt og galið alveg. Elli "burnout-lowrider", fyrrum E21 hneta kíkti til okkar. Rútur kom á staðinn og stendur sig vel í að smita út frá sér boðskapinn. Kom með hann Orn Johnson sem er orðinn alveg forfallinn BMW vifta, þó svo að hann vinni hjá Ræsi ![]() En eins og áður sagði, þá var fullt af öðrum þarna, sem ég er búinn að gleyma og þekki ekki nógu vel ![]() Látið var vera að mála bæinn rauðan, þar sem FM-hnakkarnir og L2Cruise liðið var alveg á fullu í því verki. En samt kíktum við nú ein 5 stykki á TikkTakk til að gæða okkur á gómsætum hringflatning með áleggi ýmisskonar. Bjarni sá sig aftur tilneyddan til að skutlast með okkur í bæinn. Sjaldan hafa svo margir átt svo einum svo mikið að þakka... Svo vorum við nú eiginlega öll í stórhættu þegar við komum til baka á tjaldstæðið.... með 2 pizzur í höndunum á troðfullu tjaldstæði klukkan 5 að nóttu! Ehemm, það myndaðist eiginlega hringur í kringum okkur af slefandi óargardýrum. En fyrir mikla miskunn náðum við inn í tjald undirritaðs þar sem kjammsað var á þessum dýrindis molum. Með mettan maga og bros á vör fór svo hópurinn að sofa undir morgun. Á Sunnudegi var haldið í vana fyrri dags og dagurinn tekinn snemma. Vaknað var um hádegi og verksummerki næturinnar skoðuð. Flóra næturinnar lá eins og hráviði hér og þar. Sérstaklega vel fór um einn uppgefinn svein sem hafði fengið sér blund með haus undir dekki félagsmanna. Árni og Salvör höfðu skotið skjólshúsi yfir ógæfusama sveininn (hann gleymdi að vísu að spyrja þau fyrirfram... eða bara yfir höfðuð sko). Hann lá í mjög athyglisverðri stellingu utan í bíl þeirra með hausinn undir framdekkinu. Hann vildi ekki alveg vakna strax, það tók svona mínútu af flauti (held það hafi ekki gert neitt gagn), ásamt 2ja metra grasdrætti frá bílnum, til að vakna. En þá vaknaði hann loks. Ropaði, meig utan í næsta tjald og hvarf á braut á vit nýrra ævintýra. Ingimari sást bregða fyrir líka þarna... hann gerði stutt stopp. Bara svona skyldu-tilkynningar-mæting Nú vígreifir félagsmenn BMWkrafts fjölmenntu svo ásamt fleirum á "burnout" keppnina þar sem hann Elli Valur (Ellívala samkvæmt kynninum) sýndi meistaratakta. Hann lét sko Toyotuna finna það og flengdi hana fram og aftur í bláum reyk þangað til hún grátbað um miskun og lofaði að hún skyldi verða BMW í næsta lífi. Undirritaður fór svo bara að tygja sig til heimferðar að þessu loknu. Enda orðinn fjörgamall og útúrbrunninn. Ekki vænlegur til áframhaldandi djamms og skemmtana ... allur bjórinn búinn skohh ![]() En nóg er/var af liði eftir til að halda heiðri okkar BMW félagsmanna á lofti. Þessi ferð var alveg meiriháttar og á eftir að verða umtöluð um ókomna framtíð ![]() Skrifið svo endilega nokkrar línur og látið heyra í ykkur.... svona nú ![]() Sæmi svakalegakáti. |
Author: | GHR [ Mon 16. Jun 2003 02:23 ] |
Post subject: | |
Frábær og skemmtileg lesning ![]() Maður dauðsér eftir að hafa ekki farið en það var gott að allir skemmtu sér vel ![]() Bara næst...... |
Author: | Dr. E31 [ Mon 16. Jun 2003 02:28 ] |
Post subject: | |
Já þetta hefur verið alveg rosa fjör. ![]() ![]() |
Author: | Djofullinn [ Mon 16. Jun 2003 10:30 ] |
Post subject: | |
Þetta var ekkert smá skemmtileg lesning og greynilega mikið fjör þarna! Ég kem pottþétt næst, þá verður fyrrverand hvíti djöfulinn hans Ella kominn í toppstand ![]() Og Elli Valur, þú ert snillingur! Að taka burnout á Toyotu pickup HAhahahaha Snilld ![]() ![]() |
Author: | hlynurst [ Mon 16. Jun 2003 12:26 ] |
Post subject: | |
Já þetta var mjög skemmtilegt... maður varð alveg mökkaður þarna á laugardagskveldið. Sötraði nokkra á götuspyrnunni vegna tafana sem urðu. Kenni því um hvernig kvöldið var hjá mér. ![]() |
Author: | bjahja [ Mon 16. Jun 2003 16:39 ] |
Post subject: | |
Frábær ferð ![]() Síðan tapaði ég í spyrnu fyri spoon integruni, en ég náði lélegu starti, gleymdi spólvörninni á ![]() Síðan var á leiðinni heim áðan og jújú, var kallinn ekki bara hyrtur af löggunni, en ég náði að bremsa mig í 114. Engin punktur og smá sekt ![]() |
Author: | hlynurst [ Mon 16. Jun 2003 17:33 ] |
Post subject: | |
Þetta er bara að ganga Bjarni... það er allavega ágætt að maður var ekki sá eini sem var stoppaður. ![]() |
Author: | Óðinn [ Tue 17. Jun 2003 12:29 ] |
Post subject: | |
Ég var einmitt að pæla hver ætti þennann sweet 732 sem var í Húnaveri um helgina helvíti flottur ![]() |
Author: | Haffi [ Tue 17. Jun 2003 17:27 ] |
Post subject: | |
WOWOWOWOW!!! INTERNET! Já ég vil þakka ykkur öllum fyrir frabæra helgi og frábært að sjá hópinn ná svona vel saman. Og Sæmi bjórgaldrakall stóð fyrir sínu ![]() Og Árni, Bjarni, Gunni, Hlynur og Óskar dudes!! U ROCK!! Stefni svo á að burna frammúr ykkur öllum á Renault næsta sumar ![]() eða taka þátt í spyrnunni á 280hp alpina? Spurning fer allt eftir því hvernig tekst að fá vini mína til að borga mér allar þær milljónir sem þeir skulda mér. ![]() Svo verður sko FJÖLMENNAÐ og lágmark 2 kútum stútað á næsta Bjórkvöldi .... jE! Haffi sveitakall |
Author: | arnib [ Tue 17. Jun 2003 17:59 ] |
Post subject: | |
Takk fyrir þessa frábæru ferð "krakkar" mínir!! Ég skemmti mér alveg hreint ótrúlega vel! Aldrei hefði ég trúað því að jafn margir gaurar (og gellur) sem þekktu hvort annað jafn lítið myndu skemmta sér svona vel og smella svona vel saman! ![]() ![]() Allavega.. Takk fyrir frábæra ferð Þið eruð snillingar! Vonandi mæta enn fleiri seinna og njóta þess sem þetta rjómalið hefur uppá að bjóða ![]() |
Author: | Jón Ragnar [ Tue 17. Jun 2003 18:36 ] |
Post subject: | |
ahh takk fyrir mig.. var þarna smá með ykkur ![]() |
Author: | saemi [ Tue 17. Jun 2003 21:44 ] |
Post subject: | |
Jon Ragnar wrote: þótt að maður hafi verið tekinn á "smá"hraða
Ég ætla ekkert að segja neitt um þessar línur, en þeir sem voru fyrir norðan geta giskað á hvað ég hefði sagt ![]() Sæmi |
Author: | Haffi [ Tue 17. Jun 2003 21:47 ] |
Post subject: | |
hehe you never stop do you?! ![]() |
Author: | saemi [ Tue 17. Jun 2003 21:50 ] |
Post subject: | |
Það voru ekki settar neinar bremsur í mig sko ![]() Sæmi |
Author: | Haffi [ Tue 17. Jun 2003 21:52 ] |
Post subject: | |
hahaha maður tók nú eftir því á föstudagskvöldinu ![]() segi ekki meir ![]() |
Page 1 of 5 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |